Aðalsíða
Staða hópleiks
Úrslitariðlar
Seðill vikunnar
1x2 tölfræði vikunar
Síðustu 6 leikir í ensku
Leikreglur

Notandi:
Lykilorð:
Nýskráning
Gleymt lykilorð
02.02.2012 23:22
Dráttur og staða
Búið er að draga í riðla í vorleiknum og uppfæra stöðuna að lokinni tveimur umferðum.

02.02.2012 23:20
Leikreglur hópleiks Selfoss getrauna.
Eftirfarandi leikreglur gilda fyrir vorleik Selfoss getrauna 2012 og taka fram þeim leikreglum sem finna má hér til vinstri á síðunni.

1. grein
Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi Selfoss. Tveir einstaklingar mynda hvern hóp og gefa honum nafn til aðgreiningar frá öðrum hópum. Þátttökugjald er kr. 5.000.- fyrir hvern hóp og greiðist við skráningu með reiðufé.
2. grein
Hópunum er skipt niður í riðla þannig að aldrei séu færri en 6 hópar í hverjum riðli og aldrei fleiri en 10.
3. grein
Hópurinn sendir inn tvo seðla á www.tippleikur.is/selfoss eða til Selfoss getrauna samanber 4. grein. Þessir tveir seðlar skulu hvor um sig innihalda 7 leiki með einu merki (fasta leiki) og 6 leiki með tveimur merkjum (tvítryggingum).
4. grein
Raðirnar skulu vera komnar til Selfoss getrauna fyrir lokun sölukerfis Íslenskra getrauna. Tekið er á móti röðunum á laugardögum í Tíbrá frá kl. 11:00 til 13:00. Einnig er hægt að senda raðirnar getraunir@umfs.is.
5. grein
Riðlakeppni stendur yfir í 10 vikur og gilda bestu níu vikur hvers hóps. Að henni lokinni fara tveir efstu hóparnir úr hverjum riðli auk fjögurra stigahæstu hópanna, af þeim sem þá eru eftir, í tvo Meistaradeildarriðla þar sem keppt er í fjórar vikur. Verði lið jöfn gilda ákvæði 8. greinar. Efstu liðin úr hvorum riðli keppa síðan til úrslita um sæmdarheitið Vormeistari Selfoss getrauna 2012. Þau lið sem eru efst í sínum riðli taka með sér tvö stig í Meistaradeildina. Þau lið sem ekki komast í Meistaradeildina keppa á sama tíma í einum riðli um Hamarinn.
6. grein
Raðirnar sem hóparnir senda inn fara ekki sjálfkrafa í sölukerfi Íslenskra getrauna, heldur þarf hver hópur að senda þær þangað sérstaklega.
7. grein
Gleymi hópur að senda inn raðir gildir lægsta skor vikunnar í þeim riðli sem viðkomandi hópur er í.
8. grein
Þegar spilað er í úrslitum eða lið eru jöfn í riðlakeppni þá kemst það lið áfram sem hefur fleiri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar jafnteflisleikir eru taldir þá fer sá hópur áfram sem hefur náð hærra skori í einstökum vikum. Sé enn jafnt þegar allar vikur hafa verið skoðaðar er varpað hlutkesti.
15.12.2011 00:44
Lokahóf og jólamatur Selfoss getrauna
Selfoss – Getraunir bjóða tippurum og fjölskyldum þeirra á lokahóf og jólamat haustleiks 2011.

Lokahófið verður haldið í Tíbrá laugardaginn 17. desember.
Matur verður borinn fram kl. 11:30 og stendur á borðum allt til kl. 13:00.
Veittar verða viðurkenningar fyrir árangur vetrarins, dregið verður í happadrætti unglingaráðs auk meiri skemmtunar.

Hlökkum til að sjá ykkur.
03.12.2011 17:22
Havana club sigurvegari í haustleik 2011
Lúlli náði 10 réttum í úrslitaleiknum og trygði Havana club nauman sigur. Liðsmenn Stelpnanna voru báðir með 9 rétta.

Til hamingju með sigurinn Havana club.

Verðlaun verða afhent við hátíðlega athöfn í Tíbrá laugardaginn 17. desember.
03.12.2011 16:01
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar
Svona tippuðu liðin sem eru í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hópur: Stelpurnar
Hjörtur: 1 2 12 - 1 2 1x - 1 12 2 - 12 1x 1 12
Árni: 1 1x 1x - 1 2 1x - 12 x2 2 - 12 x 1 1

Hópur: Havana club
Lúðvík: 1 1x 1x - 1 2 1x - 1 1x 2 - 1x x2 1 1
Einar: 1 x2 x2 - 1 2 x2 - x2 2 2 - 12 12 1 1
26.11.2011 23:13
Havana club og Stelpurnar keppa til úrslita
Þá er riðlakeppninni í haustleiknum lokið og ljóst að Havana club sigraði A-riðil og Stelpurnar B-riðil.

Baráttan í A-riðli stóð á milli Havana club og ríkjandi meistara í UDN. Bæði lið spiluðu varnarleik í dag fengu sitt alakasta skor í haustleiknum. Þau hentu bæði út 6u og enda því með 83 stig Havana club og 82 stig UDN. Aðrir fengu minna.

Í B-riðli var ennþá meiri spenna. Tveir kaldir og Stelpurnar sem spiluðu sóknarbolta í dag fengu bæði 90 stig. Stelpurnar áttu 5u til að henda og enda því með 85 stig á meðan Tveir kaldir þurftu að henda 5u og enda því með 84 stig. Aðrir fengu minna.

Úrslitaleikurinn fer fram nk. laugardag 3. desember og verður í beinni útsendingu bæði í Tímanum og Þjóðviljanum.
13.11.2011 23:09
Staðan eftir 8. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna eftir 8. umferð þar sem að óhætt er að segja að nokkrir hópar hafi skitið upp á bak.
12.11.2011 01:18
Staðan eftir 7 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna eftir 7. umferð. Ný styttist í annan endann og skemmtilegur seðill um helgina.
16.10.2011 23:10
Staðan eftir 4 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna nema hvað að Elvar er með 38 stig í B-riðli og Helgi með 37 stig í A-riðli.
12.10.2011 23:39
Búið að raða í riðla og uppfæra stöðuna eftir 3 umferðir
Þá er búið að uppfæra stöðuna eftir þriðju umferð riðlakeppninnar. Jafnframt er búið að draga í riðla en auk þeirra liða sem eru skráð í stöðutöflunni er í A-riðli lið frá Helga S. Haralds. með 29 stig (fjögur X og fimm 2) og í B-riðli lið frá Elvari Gunn. með 29 stig (sjö X og þrjá 2).

Svo minnum við á að keppt verður í 10 vikur og gilda bestu 9 vikurnar. Eftir það keppa efstu liðin í hvorum riðli til úrslita um sæmdarheitið Haustmeistari Selfoss getrauna 2011. Úrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 3. desember.

Stefnt er á dögurð laugardaginn 29. október og jólahlaðborð og lokahóf föstudaginn 9. desember.
07.10.2011 23:48
Leikreglur haustleiks Selfoss getrauna 2011
Hér fyrir neðan má finna leikreglur haustleiks Selfoss getrauna 2011. Rétt er að taka fram að þessi frétt tekur fram fyrir þær leikreglur sem finna má hér til hliðar undir hlekknum "Leikreglur".

Reglur tippleiks Selfoss getrauna haust 2011

1. grein
Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi Selfoss. Tveir einstaklingar mynda hvern hóp og gefa honum nafn til aðgreiningar frá öðrum hópum. Þátttökugjald er kr. 5.000.- fyrir hvern hóp og greiðist við skráningu með reiðufé.

2. grein
Hópurinn sendir inn tvo seðla á www.tippleikur.is/selfoss eða til Selfoss getrauna samanber 3. grein. Þessir tveir seðlar skulu hvor um sig innihalda 7 leiki með einu merki og 6 leiki með tveimur merkjum (tvítryggingum).

3. grein
Raðirnar skulu vera komnar til Selfoss getrauna fyrir lokun sölukerfis Íslenskra getrauna. Tekið er á móti röðunum á laugardögum í Tíbrá frá kl. 11:00 til 13:00. Einnig er hægt að senda raðirnar á getraunir@umfs.is eða hringja á laugardögum í síma 894-5070.

4. grein
Hópunum er skipt í tvo jafnstóra riðla (ef mögulegt). Riðlakeppnin stendur yfir í 10 vikur og gilda bestu níu vikur hvers liðs. Efstu liðin úr hvorum riðli keppa síðan til úrslita um sæmdarheitið Haustmeistari Selfoss getrauna 2011. Verði lið jöfn gilda ákvæði 7. greinar.

5. grein
Raðirnar sem hóparnir senda inn fara ekki sjálfkrafa í sölukerfi Íslenskra getrauna, heldur þarf hver hópur að senda þær þangað sérstaklega.

6. grein
Gleymi hópur að senda inn raðir gildir lægsta skor vikunnar fyrir viðkomandi hóp.

7. grein
Verði hópar jafnir að stigum telst það lið ofar sem hefur fleiri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar þeir leikir eru skoðaðir er varpað hlutkesti.
24.09.2011 22:57
Úrslit í fyrstu umferð og tveir seðlar með 13 réttum í Tíbrá
Búið er að fara yfir 1. umferðina en eftir er að draga í riðla.

Stóri seðillinn skilaði 12 réttum og 1000 kr. í vinning. En annars voru tveir aðrir seðlar með 13 rétta í dag.
22.09.2011 22:38
Nýr hópleikur að hefjast hjá Selfoss getraunum
Nýr hópleikur, haustleikur Selfoss getrauna, hefst laugardaginn 24. september. Hægt er að skrá sig til leiks í Tíbrá (Engjavegi 50), þar sem við erum með opið hús frá kl. 11:00 – 13:00 alla laugardaga í vetur. Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn með því að smella á hlekkinn hér til hliðar.

Eflum félagsandann og mætum í félagsheimili UMF. Selfoss í Tíbrá á laugardagsmorgnum. Þar er heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi.

Láttu vini þína, félaga og fjölskyldu vita og hvettu alla til að mæta með okkur.

Við hlökkum til að sjá þig,
2. flokkur kvenna og karla og Selfoss getraunir.
05.05.2011 01:14
Lokahóf í Vorleik 2011
Selfoss Getraunir, knattspyrnudeild UMFS og stuðningsmannaklúbburinn bjóða þér til mikillar hátíðar í Tryggvaskála nk. föstudag 6. maí milli kl. 21 og 23.

Sigurvegurum í vorleik Selfoss Getrauna verða afhent sigurlaunin sem eru ferð að eigin vali á leik BÍ/Bolungarvíkur og Selfoss á Torfnesvelli á Ísafirði.

Þjálfarar meistaraflokka, þeir Logi Ólafsson, Auðun Helga. og Björn Kristinn Björnsson fara yfir komandi sumar. Nýir leikmenn kynntir fyrir stuðningsmönnum.

Ari Eldjárn uppistandari mun svo láta gamminn geysa.

Stuðningsmannaklúbburinn verður að sjálfsögðu á staðnum. Hvetjum alla til að endurnýja kynni sín af klúbbnum eða ganga í hann í fyrsta skipti.

Þetta er að sjálfsögðu kvöld fyrir stuðningsmenn Selfyssinga og eru ALLIR velkomnir. Munum að við stöndum saman í þessu og látum vini og félaga vita af þessu skemmtilega kvöldi. Að sjálfsögðu er ókeypis inn og á staðnum verða seldar léttar veitingar.
30.04.2011 16:09
UDN sigurvegari í Vorleik 2011
Pálmi náði 9 réttum í úrslitaleiknum og trygði UDN sigurinn. Þar sem Andrinho náði einungis 8 rétt.

Til hamingju með sigurinn UDN.
30.04.2011 13:45
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar
Svona tippuðu liðin sem eru í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hópur: Andrinho
Jón Birgir Kristjánsson 1 1x 1 - 1x 1 1 - x2 1 x2 - 1x 1 x2 1
Guðmundur Bergsson 1 12 x2 - 1 1x 1 - 12 1 1 - 1 1x 2 1x

Hópur: UDN
Sigurður Rúnar Hafliðason 1 12 x2 - x2 1x 2 - 2 1x x2 - 1 1 2 1
Pálmi Jóhannsson 1 1x x2 - 2 1 x2 - 2 12 1 - 1 1x x2 1
30.04.2011 00:54
Lokahóf Vorleiks og upphitun fyrir knattspyrnusumarið
Tryggvaskála föstudaginn 6. maí milli kl. 21 og 23.

Verðalaunaafhending í Vorleik Selfoss Getrauna.
Þjálfarar meistaraflokka fara yfir markmið sumarsins.
Fyrirliðar mfl. kk. og kvk. fara yfir vonir og þrár.
Leikmannakynningar, nýjir leikmenn kynntir til sögunnar og kannski gamlir líka!
Stuðningsmannaklúbburinn segir nokkur vel valin orð.

Seldur bjór í bauk og boðið upp á snittur í stauk.

Meira á leiðinni.

Mætir Skjálfti??
25.04.2011 22:23
Andrinho og UDN mætast í úrslitaleik - Tígull sr sigraði Hamarinn
Þá er ljóst að Andrinho og UDN mætast í úrslitum vorleiksins sem fram fer næstu helgi.

Tígull sr sigraði Hamarinn örugglega og óskum við þeim til hamingju með þann stórkostlega áfanga.
10.04.2011 22:43
Staðan ef tvær umferðir
Þá er búið að uppfæra stöðuna að lokinni 2. umferð. Það er líka búið að bæta 2 stigum við sigurvegarana úr riðlunum (Botna, Bond og Andrinho). Tveimur stigum var bætt við skor þeirra í 13. leikviku.
06.04.2011 17:09
Staðan eftir 1. umferð í úrslitum
Þá er búið að leiðrétta stöðutöfluna og allir hópar komnir með sín stig.
02.04.2011 02:07
Dögurður í Tíbrá
Á laugardag kl. 11:30 - 13:00 bjóða Selfoss-Getraunir og 2. fl. kvk. og kk. upp á glæsilegan dögurð (e. brunch) í Tíbrá.

Meistarakokkurinn Ingi sér um matinn.

Hvetjum alla tippara til að mæta, taka makann og börnin
með og njóta matarins í góðum félagsskap.

Hlökkum til að sjá ykkur,
2. flokkur kvenna og karla
og Selfoss-Getraunir
27.03.2011 23:15
Lokastaðan í riðlakeppninni
A-Riðill
1. Botna 84 (2 stig í Meistaradeildina)
2. Selhús 81
3. Tundra 80
Fyrrgreind lið fara áfram.

Eftirtalin lið fara í Hamarinn.
FC Vaðnes 79, Feitu sporarnir 78, Toto 77, Stelpurnar 75, TK-Frikki 73 og Royal Arsenal 69.

B-Riðill
1. Andrinho 84 (2 stig í Meistaradeildina)
2. Týr 82 stig
3. Gunnbjörn 81 stig
4. Havana club 81 stig
Fyrrgreind lið fara áfram.

Eftirtalin lið fara í Hamarinn.
Hallgerður Langbrók 79, Tígull sr. 77, Þruman 75, Arsenal 68 (Arsenal alltaf við botninn eins og vanalega) og Vogur 72.

C-Riðill
1. Bond 83 (2 stig í Meistaradeildina)
2. Tveir kaldir 82 stig
3. Heitu sporarnir 81 stig
4. Forest FC 81 stig
5. UDN 80 stig
Fyrrgreind lið fara áfram.

Eftirtalin lið fara í Hamarinn.
Tígull jr. 77, FC Bora 76 og Háin 75.

Dregið í Meistaradeildarriðla næsta laugardag.

Athugasemdir og ábendingar um hugsanlegar (en mjög ólíklegar) villur berist til Gissurar í síma 894-5070.
27.03.2011 23:04
Staðan eftir 10. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna og nú er verið að draga frá slökustu vikuna. Lokastaðan kemur von bráðar.
23.03.2011 23:10
Búið að uppfæra stöðuna
Staðan eftir níu umferðir er rétt og einungis lokaumferðin í riðlakeppninni eftir næsta laugardag.
13.03.2011 23:34
Staðan eftir umferð 8
Búið er að uppfæra stöðuna. Nú eru einungis tvær vikur eftir af riðlakeppninni svo hver fer að verða seinastur að krækja í toppsætin.
06.03.2011 11:02
Staðan eftir 7. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna að loknum sjö umferðum.
28.02.2011 22:02
Staðan eftir 6 umferðir
Búið að uppfæra stöðuna.
25.02.2011 23:11
Staðan eftir 5. umferð...
er rétt.
13.02.2011 22:54
Staðan eftir fjórar umferðir
Staðan er uppfærð og rétt að lokinni fjórðu umferð.
08.02.2011 23:19
Staðan
Búið að uppfæra stöðuna að loknum þremur umferðum.
31.01.2011 22:45
Dregið í riðla og staðan
Búið er að draga í riðla í vorleiknum og uppfæra stöðuna að lokinni annarri umferð.
23.01.2011 23:39
Stigaskor í 1. umferð
Búið að er telja og skrá stig í 1. umferð vorleiksins. Dregið verður í riðla þrjá riðla nk. laugardag. Það verða svo 12 lið sem komast í Meistaradeildina en rétt er að minna á að efsta liðið í hverjum riðli tekur með sér 2 stig í Meistaradeildina og því til mikils að vinna að toppa sinn riðil.
23.01.2011 23:13
Leikreglur vorleiks Selfoss getrauna 2011
Hér fyrir neðan má finna leikreglur vorleiks Selfoss getrauna. Rétt er að taka fram að þessi frétt tekur fram fyrir þær leikreglur sem finna má hér til hliðar undir hlekknum "Leikreglur"
Lesa meira
15.01.2011 11:10
Vorleikur Selfoss getrauna hefst 22. janúar
Nýr hópleikur hefst laugardaginn 22. janúar. Hægt er að skrá sig til leiks í Tíbrá (Engjavegi 50), þar sem við erum með opið hús frá kl. 11:00 – 13:00 alla laugardaga í vetur. Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn á síðunni sem þú ert að lesa.

Við bjóðum þér að efla félagsandann með því að mæta í félagsheimilið UMF. Selfoss í Tíbrá á laugardagsmorgun. Þar er heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi.

Láttu vini þína, félaga og fjölskyldu vita og hvettu alla til að mæta með okkur.
14.12.2010 23:49
Lokahóf og jólamatur Selfoss-Getrauna
Selfoss–Getraunir bjóða þér og fjölskyldu þinni á lokahóf og jólamat haustleiks 2010.

Lokahófið verður haldið í Tíbrá laugardaginn 18. desember.
Matur verður borinn fram kl. 11:30 og stendur á borðum allt til kl. 13:00.
Veittar verða viðurkenningar fyrir árangur vetrarins, dregið verður í happadrætti unglingaráðs auk annarra skemmtilegra uppákoma

Hlökkum til að sjá ykkur.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Gissurar í síma 894-5070 eða með tölvupósti á netfangið getraunir@umfs.is í seinasta lagi fimmtudaginn 16. desember.
28.11.2010 01:27
Haustleik Selfoss-Getrauna lokið - ekki er allt sem sýnist í stöðutöflunni
Þá er æsispennandi haustleik Selfoss-Getrauna lokið. Þrjú lið áttu mesta möguleika á titlinum fyrir lokaumferðina og því ljóst að ekkert mátti útaf bregða. Þegar búið er að reikna saman 9 bestu vikur hvers liðs (eða draga frá þá slökustu) er niðurstaðan eftirfarandi.

1. sæti með 90-7 = 83 rétta og 18 útisigra er Forest FC.
2. sæti með 91-8 = 83 rétta og 14 útisigra er Tígull jr.
3. sæti með 89-7 = 82 rétta er Týr.
4. sæti með 88-7 = 81 réttan er Bond.

Aðrir eru með færri stig og geta líklega reiknað sjálfir sín afrek. Síðastir en ekki sístir eru Arsenal-menn en þeir hafa glímt við meiðsli í vetur.

Við óskum Forest FC til hamingju með glæsilegan árangur en þetta er besti árangur félagsins frá því skömmu eftir að Vigdís varð forseti. Jafnframt eru þeir feðgar í Forest FC fyrstir til að sinna tippkeppni Selfoss-Getrauna tvisvar sinnum. Það má því svo sannarlega segja að þeir viðmiðin hjá okkur.

Til hamingju Forest FC og takk fyrir þátttökuna allir hópar. Lokahóf verður auglýst fljótlega.
Ef menn verða varir við villur í útreikningi er æskilegt að hafa samband við umsjónarmenn hið fyrsta.
21.11.2010 23:43
Staðan fyrir lokaumferðina
Þá er búið að uppfæra stöðuna fyrir lokaumferðina í tippleiknum svo að nú er að duga eða drepast. Munið að slakasta vikan dettur út þannig að 9 af 10 telja.
14.11.2010 23:29
Staðan eftir 8 umferðir
Búið að uppfæra stöðuna í hópleikum að lokinni 8. umferð.
07.11.2010 12:34
Staðan eftir 7 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna að loknum 7 umferðum. Sviptingar urðu á toppnum.
30.10.2010 23:46
Staðan eftir 6 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna eftir sex umferðir.
25.10.2010 21:45
Staðan eftir 5. umferð
Staðan er komin eftir fimm umferðir.
17.10.2010 21:30
Staðan eftir 4. umferð - Hlutaveltan að rúlla af stað
Búið er að uppfæra stöðuna að loknum fjórum umferðum.

Nú er byrjað að safna í hlutaveltu sem rúllar í allan vetur. Hluturinn kostar 5000 kr og er tekið við greiðslu í Tíbrá á laugardögum.

Búið er að leysa tæknileg vandamál varðandi tippleikinn og verður gert upp við þá sem voru ofrukkaðir um næstu helgi. Sem betur fer hafði þetta ekki neikvæð áhrif á niðurstöðu tippara og er það gott.
11.10.2010 16:23
Staðan eftir 3 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna eftir þrjár umferðir.
03.10.2010 00:52
Staðan eftir 2. umferð
Búið að uppfæra stöðuna að loknum tveimur umferðum.

Bendum á að þeir sem eiga eftir að greiða gjaldið þátttökugjaldið geta millifært á reikning 586-14-603900 kt. 180476-3699. Krónur 2500 á einstakling sem gera 5000 krónur á hóp.
28.09.2010 21:53
Staðan eftir 1. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna að lokinni 1. umferð.
28.09.2010 21:51
Reglur Hlutaveltu Selfoss – Getrauna
• Þátttakendur kaupa hluti í sameiginlegum tipppotti.
• Hver hlutur kostar kr. 5.000.
• Í hverri viku er tippað fyrir því sem næst kr. 15.000.
• Sérfræðingar Selfoss – Getrauna sjá um að tippa hverju sinni.
• Vinningar leggjast sjálfkrafa í sameiginlegan tipppott.
• Leikurinn er gerður upp í seinasta lagi í lok tímabils þann 22. maí 2011.
• Þátttakendur gera sér grein fjárhagslegri áhættu og því að tipppotturinn klárast ef keyptir seðlar skila ekki vinningum.
• Áætluð velta Hlutaveltunnar skilar sér í auknum tekjum til knattspyrnudeildar.
28.09.2010 21:49
Reglur Tippleiks Selfoss – Getrauna í Haustleik 2010
Athugið að þessar reglur gilda umfram þær reglur sem eru hér til hliðar á síðunni.

1. grein
Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi Selfoss. Tveir einstaklingar mynda hvern hóp og gefa honum nafn til aðgreiningar frá öðrum hópum. Þátttökugjald er kr. 5.000.- fyrir hvern hóp og greiðist við skráningu með reiðufé.

2. grein
Hópurinn sendir inn tvo seðla á www.tippleikur.is/selfoss eða til Selfoss – Getrauna samanber 3. grein. Þessir tveir seðlar skulu hvor um sig innihalda 7 leiki með einu merki og 6 leiki með tveimur merkjum (tvítryggingum).

3. grein
Raðirnar skulu vera komnar til Selfoss – Getrauna fyrir lokun sölukerfis Íslenskra getrauna. Tekið er á móti röðunum á laugardögum í Tíbrá frá kl. 11:00 til 13:00. Einnig er hægt að senda raðirnar getraunir@umfs.is eða hringja á laugardögum í síma 894-5070.

4. grein
Keppnin stendur yfir í 10 vikur og gilda bestu níu vikur hvers liðs. Að henni lokinni stendur stigahæsti hópurinn uppi sem sigurvegari og hlýtur sæmdarheitið Hópleikjameistari - Tippleiks Selfoss – Getrauna. Verði lið jöfn gilda ákvæði 7. greinar.

5. grein
Raðirnar sem hóparnir senda inn fara ekki sjálfkrafa í sölukerfi Íslenskra getrauna, heldur þarf hver hópur að senda þær þangað sérstaklega.

6. grein
Gleymi hópur að senda inn raðir gildir lægsta skor vikunnar fyrir viðkomandi hóp.

7. grein
Verði hópar jafnir að stigum telst það lið ofar sem hefur fleiri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar þeir leikir eru skoðaðir er varpað hlutkesti.
17.09.2010 10:32
Getraunasúpa
Við bjóðum þér að mæta í getraunasúpu í Tíbrá, félagsheimili UMF. Selfoss, nk. laugardag 18. september milli kl. 11 og 13 og kynna þér vetrarstarf Selfoss-Getrauna.

Með þessu hefjum við formlega starf vetrarins hjá Selfoss – Getraunum og fer nýr hópleikur af stað þann 25. september.

Fyrir marga er það löngu orðinn fastur liður að mæta í Tíbrá á laugardagsmorgnum og taka púlsinn á þjóðlífinu á Selfossi. Enda geta allir tekið þátt í getraunastarfinu óháð kyni, aldri og búsetu. Eina sem þarf er áhugi á félagsstarfi Selfoss.

Við viljum stækka hópinn og hvetjum þig til að vera með okkur í Tíbrá í vetur.

Hlökkum til að sjá þig, Selfoss – Getraunir.
06.05.2010 23:28
Lokahóf og upphitun fyrir sumarið
Upphitun fyrir sumarið hjá meistaraflokkum karla og kvenna.

Dagskrá:
Við opnum venju skv. kl. 11.
11:30 Þjálfari og fyrirliði mfl. kk. rýna í sumarið og svara spurningum stuðningsmanna.
11:45 Kynning á stuðningsmannaklúbbnum og Skjálfta.
12:00 Verðlaunaafhending vorleiksins.
12:15 Hjörvar Hafliðason sparkspekingur RÚV fer yfir möguleika Selfoss í sumar og svarar spurningum blóðþyrstra Selfyssinga.
12:30 Þjálfari og fyrirliði mfl. kvk. rýna í sumarið og svara spurningum stuðningsmanna.

Boðið verður upp á grillkjöt frá Krás, kartöflusalat frá Þykkvabæjar og SS-pylsur fyrir börnin. Öllu rennt niður með ísköldu kók. Að lokum fá allir Jöklaís.

Hægt verður að skrá sig í stuðningsmannaklúbbinn á staðnum.
02.05.2010 23:16
Selhús marði Meistaradeildina
Eftir æsispennandi úrslitaleik, þar sem hvort lið náði 11 réttum, reyndist það vera leikur Hammarby og Norrköping sem réði úrslitum í úrslitaleik Vorleiksins hjá okkur að þessu sinni. Gísli snaraði útisigri á leikinn sem réði því að Selhús vann keppnina.
Til hamingju með óvæntan en glæsilegan árangur Selhús-bræður.

Minnum svo á lokahóf og upphitun fyrir sumarið í Tíbrá nk. laugardag milli kl. 11 og 13.

Selfoss-Getraunir bjóða öllum stuðningsmönnum Selfoss að hita upp fyrir sumarið í félagsheimilinu Tíbrá við Engjaveg laugardaginn 8. maí milli klukkan 11 og 13. Boðið verður upp á grillkjöt frá Krás og pylsur fyrir börnin.
Þjálfarar og fyrirliðar meistaraflokka kvenna og karla fara yfir komandi tímabil og undirbúning þess. Sérstakir gestir verða Pétur Hrafn Sigurðsson og Hjörvar Hafliðason frá Íslenskum getraunum.
Jafnframt verða veitt verðlaun fyrir vorleik Selfoss-Getrauna sem lauk um seinustu helgi.
Hlökkum til að sjá ykkur.
02.05.2010 23:11
Fyrstu tölur
Eyþór náði 11 leikjum fyrir Sjallana.
Helgi var með 10 fyrir Framsókn.
Arna Ír var með 7 fyrir Samfylkingu (og þó það tengist fréttinni á engan hátt var Hemmi með 7 líka!)
Þórdís Eygló var svo með 6 leiki rétta fyrir Vinstri græna.

Það var nú til gamans gert að leyfa frambjóðendum að tippa og óþarfi fyrir alla að kjósa í samræmi við getspeki þó að aðrir muni nýta sér þetta til viðmiðunar. :)

Við þökkum frambjóðendum öllum kærlega fyrir komuna og efumst ekki um að heimsóknin muni hjálpa þeim til góðra verka í bæjarstjórn.
01.05.2010 13:25
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar
Svona tippuðu liðin sem eru í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hópur: Selhús
Baldur Pálsson 1x 12 2 - 1 2 1x - 1x 2 x2 - 1 1 2 x2
Gísli Björnsson 1 x2 x - 1 12 12 - 1 1 1 - 12 2 x2 1x

Hópur: Týr
Sigurður Einar Einarsson 1x 1 2 - 1 12 1 - 1x 1x 1x - 1 2 2 x2
Ásgeir G. Hilmarsson 1x 1x x2 - 1 1x 1 - 1 1 1 - 1x 2 2 1x
01.05.2010 13:21
Frambjóðendur mættu og tippuðu
Fulltrúar frá öllum framboðum í sveitarfélaginu Árborg mættu og tippuðu á seðil helgarinnar. Hér fyrir neðan má sjá hvernig þeir tippuðu.

Vinstri grænir:
1X 1 1X - X2 1 1X - 2 X2 1 - X2 2 2 1

Framsókn:
1X 2 X2 - 1 2 1 - 1X 12 2 - 1 12 2 1X

Sjálfstæðisflokkur:
1 2 X2 - 1 12 12 - 12 12 12 - 1 2 2 1

Samfylking:
1X X2 1 - 1 2 1 - 1X X2 1 - 1X 2 2 1X
25.04.2010 22:39
Framundan hjá Selfoss-Getraunum í Tíbrá
Laugardaginn 1. maí munu frambjóðendur frá öllum framboðum í Árborg mæta og tippa á seðil helgarinnar.

Þar gefst þeim og okkur gott tækifæri til að fara yfir málefni líðandi stundar og ekki að efa að þeir geta margt lært af því mjög svo heimsspekilega spjalli sem fram fer í Tíbrá milli 11 og 13 á laugardögum.

8. maí verður svo lokahóf vorleiksins haldið í Tíbrá. Auk hefðbundinnar verðlaunaafhendingar munu þjálfarar og fyrirliðar mfl. kvenna og karla sitja fyrir svörum varðandi komandi tímabil hjá Selfossi.
Grillað verður í mannskapinn og ís í eftirrétt. Gengið hefur verið frá pöntun á góðu veðri.
25.04.2010 22:33
Selhús og Týr í úrslit - Stelpurnar tóku Hamarinn
Þá er ljóst að Selhús og Týr mætast í úrslitum vorleiksins 2010. Fylgst verður með í beinni útsendingu nk. laugardag hér á síðu tippleiksins.

Stelpurnar áttu hreint ótrúlega endurkomu í Hamrinum eftir að hafa byrjað á 5 réttum í fyrstu umferð. Til hamingju Stelpur. :)
25.04.2010 22:30
Hlutaveltan fór...
illa. 7 réttir og potturinn tómur.

Gefin verður út skýrsla í sumar þar sem farið verður yfir aðdraganda og ástæður þess að potturinn tæmdist. Sérstakur kafli um siðferði verður í skýrslunni en rétt er að geta þess að enginn mun segja af sér eða taka ábyrgð á gjörðum sínum... :-)

Næsta haust verða allir búnir að gleyma óförum vorsins og þá verður safnað í nýja hlutaveltu.
24.04.2010 12:31
Hlutaveltan
Enski boltinn
Opinn seðill
Leikvika 16 2010
Miði keyptur: 24.04.10

Nr. Leikur.
1 Arsenal - Man.City 1X2
2 Bolton - Portsmouth 1
3 Hull - Sunderland 1X
4 West Ham - Wigan 1
5 Wolves - Blackburn X2
6 Cardiff - Sheff.Wed. 1
7 Preston - Leicester X2
8 Sheff.Utd. - Swansea X2
9 Middlesbro - Coventry 1
10 Peterbro - Blackpool X2
11 Watford - Reading X2
12 AIK - Hacken 1X
13 Atvidaberg - Gautaborg X2

Verð: 12.288 kr.

Ég styð: 800 Selfoss
18.04.2010 23:18
Getraunasúpa
Selfoss-Getraunir fagna sumri með því að bjóða tippurum og öðrum velunnurum knattspyrnudeildar í súpu laugardaginn 24. apríl.
Viðburðurinn verður í Tíbrá kl. 11:30 þar sem Tommi, tæknilegur ráðgjafi, mun snara fram dýrindis súpu.
Hvetjum alla til að mæta og taka fjölskylduna með í skemmtilegt félagsstarf fyrir alla fjölskylduna.
18.04.2010 15:57
Staðan fyrir lokaumferð Meistaradeildarinnar og Hamarsins
Búið er að uppfæra stöðuna fyrir lokaumferðina í Meistaradeildinni og Hamrinum.

Ljóst er að spennan er mikil í B-riðli og Hamrinum en minni í A-riðli þar sem Selhús hefur tekið afgerandi forystu.
17.04.2010 23:54
Hlutaveltan fór nærri kostnaði
Áætlaðar vinningsupphæðir
Réttir Fjöldi Upphæð Samtals
13 0 1.491.460 0
12 0 31.200 0
11 1 2.620 2.620
10 11 740 8.140
Samtals 10.760

Þú ert með mest 11 rétta
17.04.2010 13:35
Hlutaveltan
Þá er búið að þurrausa sjóði hlutaveltunnar og ljóst að þessi seðill sker úr um hagnað vetrarins.

Enski boltinn
Opinn seðill
Leikvika 15 2010
Miði keyptur: 17.04.10

Nr. Leikur.
1 Tottenham - Chelsea 1X2
2 Birmingham - Hull 1
3 Blackburn - Everton X2
4 Fulham - Wolves 1X
5 Stoke - Bolton 1
6 Sunderland - Burnley 1
7 Blackpool - Nott.For. 1X
8 Q.P.R. - Cardiff 1X2
9 Derby - Crystal Palace 1X2
10 Leicester - Watford 1
11 Scunthorpe - Bristol City 1X
12 Swansea - Barnsley 1
13 W.B.A. - Middlesbro 1X

Verð: 13.824 kr.

Ég styð: 800 Selfoss
10.04.2010 22:19
Staðan eftir 2 umferðir af 4 og hlutaveltan
Nu er allt eftir bókinni og búið að uppfæra stöðuna í tippleiknum. Selhús hefur tekið afgerandi forystu í A-riðli en spennan er meiri í B-riðli. Hamarinn er líka spennandi en þar keppa minni spámenn í eins konar Evrópudeild!!! :)

Hlutaveltan gekk nokkuð vel. Seðillinn skilaði 11 réttum og munaði Agnarlitlu að 12 réttir væru í húsi. :-) Engu að síður nægir vinningurinn fyrir einum seðli i viðbót og næstu viku eiga Guðmundur Bergsson og Axel Þór Gissurarson að tippa.

Sjá nánar hér að neðan.
Lesa meira
10.04.2010 12:21
Stóri seðillinn
Enski boltinn
Opinn seðill
Leikvika 14 2010
Miði keyptur: 10.04.10
kl. 12:18:02

Nr. Leikur.
1 Aston Villa - Chelsea 1X2
2 Hull - Burnley 1
3 West Ham - Sunderland 1X2
4 Cardiff - Reading 1X
5 Crystal Palace - Q.P.R. 1X2
6 Doncaster - W.B.A. 2
7 Middlesbro - Sheff.Wed. 1
8 Newcastle - Blackpool 1X
9 Nott.For. - Ipswich 1
10 Preston - Scunthorpe 1
11 Watford - Plymouth X2
12 Hacken - Atvidaberg 1X
13 Landskrona - Degerfors 1X

Verð: 13.824 kr.

Ég styð: 800 Hópur: 800



04.04.2010 14:17
Hlutaveltan og staðan eftir fyrstu umferð
Hlutaveltan fór illa en þó er það gleðiefni að fleiri leikir voru réttir en vitlausir. Við skulum gleðjast yfir því. Ekki er búið að uppfæra úrslit helgarinnar og því ekki hægt að uppfæra stöðuna að svo komnu máli.
03.04.2010 12:07
Hlutaveltan
Enski boltinn
Opinn seðill
Leikvika 13 2010
Miði keyptur: 03.04.10

1 Arsenal - Wolves 1X
2 Bolton - Aston Villa 1X2
3 Portsmouth - Blackburn 1X2
4 Stoke - Hull 1
5 Sunderland - Tottenham X2
6 Bristol City - Nott.For. 1X2
7 Ipswich - Reading 1X2
8 Q.P.R. - Sheff.Wed. 1
9 Coventry - Derby 1
10 Doncaster - Plymouth 1
11 Middlesbro - Crystal Palace 1
12 Peterbro - Newcastle X2
13 Preston - Watford 1

Verð: 10.368 kr.

Ég styð: 800 Selfoss
03.04.2010 11:51
Leiðrétting
Beðist er velvirðingar á mistökum í útreikningum. FC Vaðnes átti að fara í Meistaradeildina á kostnað Andrinho. Búið er að leiðrétta þetta.
02.04.2010 23:26
Sumartími í Englandi
Nú er skollið á sumar í Englandi og því lokar sölukerfi Íslenskra getrauna kl. 13:00 á laugardögum. Af gefnu tilefni biðjum við tippara að vera tímanlega að skila inn röðum. Bendum einnig á að umsjónarmenn geta ekki ábyrgst að röðum sem skilað er í gegnum tippleikinn eftir kl. 12:30 verði rennt í gegnum sölukerfið. Við reynum þó okkar allra besta! :)
02.04.2010 00:06
Liðin í Meistaradeildinni
Eftirtalin lið komust í Meistaradeildina: Tundra, Týr, Heitu Sporarnir og Tígull jr. sem sigurvegarar og fá eitt stig í forgjöf í Meistaradeildinni.

Ekki bara heppni, Gumrob, Babú Gonzales og Bond sem lið í öðru sæti í sínum riðli.

Bambar, Ísbjörninn, Selhús, Tveir kaldir, Tígull sr. og FC Vaðnes sem 6 stigahæstu liðin utan efstu tveggja sætanna.

Dregið verður í riðla á laugardag.

Önnur lið keppa um hinn lítt eftirsótta Hamar!

Allar hugsanlegar villur skal tilkynna til umsjónarmanns við fyrsta tækifæri í síma 8945070 eða í Tíbrá á laugardag.
02.04.2010 00:01
Meistaradeildin og Hamarinn hefst laugardaginn 3. apríl
Þá er loks búið að greina lokastöðuna í riðlakeppninni og ljóst að til að komast í Meistaradeildina þurfti að hafa 77 stig og 17 útisigra.

Til glöggvunar eru reglur nr 5 og 8 hér fyrir neðan.

5. grein
Riðlakeppni stendur yfir í 10 vikur og gilda bestu átta vikur hvers liðs. Að henni lokinni fara tveir efstu hóparnir úr hverjum riðli auk sex stigahæstu hópanna af þeim sem þá eru eftir, í tvo Meistaradeildarriðla þar sem keppt er í fjórar vikur. Verði lið jöfn gilda ákvæði 8. greinar. Efstu liðin úr hvorum riðli keppa síðan til úrslita um sæmdarheitið Hópleikjameistari Selfoss-Getrauna. Þau lið sem eru efst í sínum riðli taka með sér eitt stig í úrslitin. Þau lið sem ekki komast í Meistaradeildarriðla keppa á sama tíma í einum riðli um Hamarinn.

8. grein
Þegar spilað er í úrslitum eða lið eru jöfn í riðlakeppni þá kemst það lið áfram sem hefur fleiri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar þeir leikir eru skoðaðir er varpað hlutkesti.
01.04.2010 23:45
Lokastaðan í riðlakeppninni
Allar hugsanlegar villur skal tilkynna til umsjónarmanns við fyrsta tækifæri í síma 8945070 eða í Tíbrá á laugardag.

A – riðill
1. Tundra 98 – 18 = 80
2. Ekki bara heppni 95 – 16 = 79 (17 útisigrar)
3. Bambar 96 – 17 = 79 (16 útisigrar)
4. Ísbjörninn 95 – 16 = 79 (13 útisigrar)
5. Naut 93 – 16 = 77 (15 útisigrar)
6. Feðgar 90 – 14 = 76
7. Garpur 87 – 14 = 73
8. Háin 86 – 14 = 72
9. Tinni 84 – 13 = 71

B - riðill
1. Týr 97 – 15 = 82
2. Gumrob 97 – 16 = 81
3. Selhús 93 – 13 = 80
4. Tveir kaldir 91 -14 = 77 (18 útisigrar)
5. havana club 89 – 13 = 76
6. Laufey og co. 85 – 12 = 73
7. Hallgerður Langbrók 85 – 13 = 72
8. Mosdal 77 – 12 = 65 (6 útisigrar)
9. Merida 77 – 12 = 65 (2 útisigrar)

C - riðill
1. Heitu sporarnir 97 – 15 = 82
2. Babú Gonzales 96 – 16 = 80
3. Tígull sr 94 – 16 = 78
4. Botna 93 – 16 = 77 (14 útisigrar)
5. Andrinho 92 – 16 = 76
6. Starsky & Hutch 87 – 15 = 72
7. Zorro 81 – 13 = 68
8. Arsenal 77 – 13 = 64

D - riðill
1. Tígull jr 96 – 13 = 83
2. Bond 97 – 17 = 80
3. FC Vaðnes 91 – 14 = 77 (17 útisigrar og 15 jafntefli)
4. Derrick&Harry 92 – 15 = 77 (13 útisigrar)
5. Hávarður Ísfirðingur 87 – 12 = 75
6. Stelpurnar 87 – 14 = 73
7. Tröllhólar 83 – 12 = 71 (14 útisigrar)
8. TK-Frikki 85 – 14 = 71 (12 útisigrar)
01.04.2010 23:14
Hlutavelta seinustu helgar
Hún fór ekki vel og verður farið sérstaklega yfir það á laugardag! Af óskiljanlegum orsökum munu sömu aðilar tippa á seðil næstu helgar þar sem Heitu sporarnir skiluðu 11 réttum í tippleiknum. En svona eru jú reglur leiksins og það þýðir ekkert að deila við dómarann.

Enski boltinn
Leikvika 12 2010
Miði keyptur: 27.03.10
kl. 12:19:13
Nr. 1 X 2 Rétt
1 53% 46% 0% X
2 0% 0% 100% X
3 53% 46% 0% 1
4 39% 35% 25% 1
5 100% 0% 0% 1
6 53% 46% 0% 2
7 0% 0% 100% X
8 39% 35% 25% X
9 0% 55% 44% 1
10 39% 35% 25% 2
11 53% 46% 0% X
12 100% 0% 0% X
13 39% 35% 25% X

Verð: 16.576 kr.

Ég styð: 800 Selfoss

Endanlegar vinningsupphæðir
Réttir Fjöldi Upphæð Samtals
13 0 2.371.090 0
12 0 66.350 0
11 0 5.710 0
10 0 1.560 0
Samtals 0

Þú fékkst mest 8 rétta
26.03.2010 15:05
Staðan eftir 9 umferðir
Beðist er afsökunar á drætti við að uppfæra stöðuna en hún hefur nú verið uppfærð og ljóst að seinasta vikan verður æsispennandi þar sem 2 slökustu vikurnar detta út.

Heitu sporarnir tippa á stóra seðil helgarinnar. Gangi þeim vel og betur en seinustu helgi sem skilaði 9 réttum.
20.03.2010 14:02
Seðillinn í hlutaveltunni 20. mars
Enski boltinn
Opinn seðill
Leikvika 11 2010
Miði keyptur: 20.03.10

Nr. Leikur.
1 Brommapojkarna - AIK 2
2 Everton - Bolton 1X
3 Portsmouth - Hull 1X
4 Stoke - Tottenham 1X2
5 Sunderland - Birmingham X2
6 Wigan - Burnley 1
7 Middlesbro - Reading 1
8 W.B.A. - Preston 1
9 Blackpool - Crystal Palace 1
10 Doncaster - Sheff.Utd. 1X2
11 Ipswich - Barnsley 1 2
12 Q.P.R. - Swansea X2
13 Sheff.Wed. - Derby 1X2

Verð: 13.824 kr.

Ég styð: 800 Selfoss
13.03.2010 21:09
Staðan eftir 8 umferðir og nýjustu tölur úr hlutaveltu
Búið er að uppfæra stöðuna og nú eru einungis tvær vikur eftir og því seinustu forvöð að fara að ná lélegu vikunum til að henda út! :) Sumir eru reyndar þegar búnir að því... oftar en tvisvar.

Aftur var vinningur í húsi og fögnum við hverjum vinningi þrátt fyrir töluverðar afskriftir af fjármunum hlutaveltunnar á sama tíma.

Næsti tippari verður Sigurður Reynir ef hann vill vera með í hlutaveltunni annars tippa Botnu bræðurnir og Tíguls feðgar.

Áætlaðar vinningsupphæðir
Réttir Fjöldi Upphæð Samtals
13 0 294.940 0
12 0 7.800 0
11 0 780 0
10 2 270 540
Samtals 540

Þú ert með mest 10 rétta
13.03.2010 16:02
Seðillinn í hlutaveltunni 13. mars
Enski boltinn
Opinn seðill
Leikvika 10 2010

Nr. Leikur.
1 Chelsea - West Ham 1
2 Birmingham - Everton X2
3 Bolton - Wigan 1X
4 Burnley - Wolves 1X
5 Stoke - Aston Villa 1X2
6 Leicester - Cardiff 1X
7 Middlesbro - Newcastle 1X2
8 W.B.A. - Blackpool 1
9 Barnsley - Crystal Palace 1X
10 Preston - Nott.Forest 1X2
11 Reading - Bristol City 1
12 Sheff.Utd. - Q.P.R. 1
13 Swansea - Sheff.Wed. 1

Verð: 13.824 kr.

Ég styð: 800
08.03.2010 22:52
Staðan eftir 7 umferðir og hlutaveltan
Þá er búið að uppfæra stöðuna að loknum 7 umferðum og niðurstaðan í fyrstu hlutaveltunni liggur fyrir. Ellert náði 11 réttum eins og sést hér fyrir neðan...
Endanlegar vinningsupphæðir
Réttir Fjöldi Upphæð Samtals
13 0 1.318.790 0
12 0 11.250 0
11 4 950 3.800
10 36 290 10.440
Samtals 14.240

Þú fékkst mest 11 rétta

Þetta þýðir hagnað upp á 416 kr. Það þykir þó ekki viðunandi og munum við ekki kjósa Ellert næsta laugardag... til að tippa á seðilinn! :)

Guðmundur Garðar, Axel Þór og Árný voru hæst um helgina og munu því fá þann heiður að tippa á seðil næstu viku.
06.03.2010 13:55
Hlutaveltan
Seðillinn í dag lítur svona út.

Opinn seðill.
1 Fulham - Tottenham 1X
2 Arsenal - Burnley 1
3 West Ham - Bolton 1X2
4 Wolves - Man.Utd. 2
5 Blackpool - Ipswich X2
6 Cardiff - Middlesbro 1
7 Crystal Palace - Sheff.Utd. 1
8 Nott.Forest - Swansea 1
9 Newcastle - Barnsley 1X2
10 Peterbro - Coventry 1X
11 Plymouth - Preston 1X
12 Q.P.R. - W.B.A. 1X2
13 Sheff.Wed. - Leicester 1X

28.02.2010 12:11
Staðan eftir 6 umferðir og 13 réttir í húsi
Þá duttu 13 réttir í hús ásamt slatta af 12-um. Það voru hinir síkátu Bambar sem tókst að ramba á 13 rétta að þessu sinni.
21.02.2010 13:09
Staðan eftir 5 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna að lokinni 5. umferð.
16.02.2010 22:45
Staðan að lokinni 4. umferð
Þá er búið að uppfæra stöðuna að fjórum umferðum loknum.
08.02.2010 23:33
Staðan eftir 3. umferð
Staðan að loknum 3. umferð hefur verið uppfærð.
01.02.2010 22:53
Greiðsla þátttökugjalds
Bent er á að hægt er að greiða þátttökugjald í vorleiknum með því að leggja inn á reikning 586-14-603900 kt. 180476-3699. Þátttökugjaldið er kr. 2000 á einstakling.
01.02.2010 22:34
Staðan eftir 2. umferð
Þá er loksins búið að uppfæra stöðuna eftir tvær umferðir. Beðist er velvirðingar á biðinni.
23.01.2010 23:58
Dráttur í riðla og staðan
Búið er að draga í riðla og uppfæra stöðuna eftir 1. umferðina. Þeir hópar sem bætast við munu bætast við þá riðla sem nú þegar hafa verið stofnaðir.
23.01.2010 00:07
Leikreglur - 5. grein
Vakin skal athygli á því að 5. grein hópleiks Selfoss-Getrauna er svohljóðandi og gildir þessi frétt umfram textann undir hlekknum "leikreglur" hér til vinstri:

5. grein
Riðlakeppni stendur yfir í 10 vikur og gilda bestu átta vikur hvers liðs. Að henni lokinni fara tveir efstu hóparnir úr hverjum riðli auk sex stigahæstu hópanna af þeim sem þá eru eftir, í tvo Meistaradeildarriðla þar sem keppt er í fjórar vikur. Verði lið jöfn gilda ákvæði 8. greinar. Efstu liðin úr hvorum riðli keppa síðan til úrslita um sæmdarheitið Hópleikjameistari Selfoss-Getrauna. Þau lið sem eru efst í sínum riðli taka með sér eitt stig í úrslitin. Þau lið sem ekki komast í Meistaradeildarriðla keppa á sama tíma í einum riðli um Hamarinn.
16.01.2010 13:16
Vorleikur Selfoss-Getrauna hefst á laugardag
Vorleikur Selfoss-Getrauna hefst laugardaginn 23. janúar. Við hvetjum alla til að skrá sig til leiks með því að mæta í Tíbrá, félagsheimili UMF. Selfoss, milli klukkan 11 og 13 á laugardag. Í Tíbrá hittast stuðningsmenn Selfoss á öllum aldri í skemmtilegu félagsstarfi óháð kyni og búsetu. Nú viljum við að þú takir þátt og hvetjum sérstaklega þá sem eru alltaf á leiðinni að slá til og mæta.

Við erum með opið hús, heitt á könnunni og bakkelsi frá Guðnabakaríi frá klukkan 11 til 13 alla laugardaga í Tíbrá að Engjavegi 50. Þar eru jafnframt veittar allar upplýsingar um getraunastarfið og hópleikinn okkar en einnig er hægt að skrá sig til leiks með því að smella á nýskráning hér til hliðar.

Munum að góður stuðningsmaður er lykillinn að góðum árangri innan vallar sem utan.

Með bestu Selfoss-kveðjum og von um þátttöku sem flestra.
2. flokkur kvenna og karla og umsjónarmenn Selfoss – Getrauna.
getraunir@umfs.is
19.12.2009 17:41
Potturinn 19. desember
Potturinn skilaði 9 réttum og engum vinning að þessu sinni. Gengur betur næst.
06.12.2009 18:58
Lokahóf haustleiks Selfoss-Getrauna 2009
Lokahóf Hausleiks Selfoss-Getrauna og jólamatur mfl. kvenna og karla verður miðvikudaginn 16. desember milli klukkan 20 og 22 í Tíbrá. Ljúffengur matur frá Krás í bland við skemmtiatriði, verðlaunaafhendingu og atriði frá minjanefnd.

ATH. Nauðsynlegt er að skrá sig í matinn í seinasta lagi mánudaginn 14. desember annað hvort með því að senda póst á getraunir@umfs.is eða hringja í síma 894-5070 (Gissur).
06.12.2009 18:51
Andrinho er sigurvegari haustleiks Selfoss-Getrauna 2009
Þá er haustleiknum lokið þar sem Andrinho standa uppi sem sigurvegarar.

Staða efstu liða þegar búið er að draga tvær lélegustu vikurnar frá.
1. Andrinho... 94-7-8= 79 stig
2. Havana Club 90-6-7= 77 stig (18 útisigrar)
3. Tígull..... 93-8-8= 77 stig (17 útisigrar)
4. FC Vaðnes.. 89-7-6= 76 stig (20 útisigrar)
5. Bond...... 91-7-8= 76 stig (17 útisigrar)
6. Hávarður Í 90-7-7= 76 stig (15 útisigrar)

Óskum Andrinho til hamingju með sigurinn. Það er greinilegt að Jónbi hefur gert góða skiptingu þegar hann skipti um tippfélaga í haust. Guðmundur hefur komið hópnum í fremstu röð. :-) Innilega til hamingju félgar.

Minnum á lokahóf (jólamat) Selfoss-Getrauna og mfl. kvenna og karla miðvikudaginn 16. desember milli klukkan 20 og 22 í Tíbrá.
29.11.2009 23:24
Staðan fyrir lokaumferðina
Búið er að uppfæra stöðuna fyrir lokaumferðina.

Fyrir þá sem fylgjast betur með en aðrir má benda á að þegar tvær slökustu vikurnar eru dregnar frá (eins og staðan er núna) eru hóparnir Tígull jr, Andrinho og Havana Club efstir og jafnir. Andrinho með flesta útisigra því næst Havana Club og Tígull jr. því raunverulega í 3. sæti þó taflan segi annað. Næstu lið á eftir eru Bond og Hávarður Ísfirðingur og því næst FC Vaðnes og Heitu Sporarnir.

Spennan verður því svakaleg um næstu helgi og er það spá þess sem þetta ritar að menn muni sitja sveittir yfir leikjum Derby-WBA og Crystal Palace-Doncaster um næstu helgi. :-)
22.11.2009 22:29
8 umferðir búnar
Búið er að uppfæra stöðuna og það er næðingur á toppnum. Ef vel er að gáð sjá menn að ef tvær slökustu vikurnar eru teknar út eru í raun 5 lið efst og jöfn. Svo að keppnin verður æsispennandi næstu tvær vikur.
15.11.2009 22:37
Staðan að loknum 7 umferðum
Búið er að uppfæra stöðuna að loknum 7 umferðum í haustleiknum. Miklar sviptingar urðu um helgina og þéttist pakkinn á toppnum svo um munar.
01.11.2009 15:22
Dögurður Selfoss – Getrauna
Laugardaginn 7. nóvember bjóða Selfoss – Getraunir öllum tippurum í dögurð (brunch) í Tíbrá.
Tækni Þjálfarinn kokkar hráefni frá Krás og Guðnabakaríi.

Dögurðurinn hefst kl. 11:30 í Tíbrá félagsheimili UMF. Selfoss.

Selfoss - Getraunir hvetja tippara til að taka maka sinn, börn og aðra fjölskyldumeðlimi með því getraunastarf er félagsstarf fyrir alla fjölskylduna.
Mætum öll og eigum notalega stund saman í léttu spjalli og góðum mat.

Hlökkum til að sjá þig.
01.11.2009 15:22
Staðan eftir 5 umferðir
Þá er haustleikurinn hálfnaður og staðan er æsispennandi. Andrinho bætti sig verulega í þessir viku og sækir fast að toppnum. Minnum á að 8 bestu vikurnar telja.
24.10.2009 22:17
Staðan eftir 4. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna að lokinni 4. umferð. Rétt er að minna á að 8 bestu af 10 gilda í haustleiknum.
18.10.2009 22:53
Staðan að lokinni 3. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna að lokinni þriðju umferð. Tígull jr. er á fljúgandi siglingu en nokkur lið fylgja í humátt á eftir.
11.10.2009 22:35
Staðan að lokinni 2. umferð
Staðan í haustleiknum er uppfærð og rétt.
04.10.2009 23:34
Staðan að lokinni 1. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna að lokinni upphafsumferðinni. Allir verða í sama riðli og gilda 8 bestu umferðir af 10. Engin úrslitakeppni heldur bara einfaldur 10 vikna hópleikur. Um að gera að fá vini eða vinnufélaga til að skrá sig því ennþá er nægur timi til að skrá sig til leiks.

SJÁ REGLUR HAUSTLEIKS 2009 Í FRÉTTINNI HÉR FYRIR NEÐAN.
02.10.2009 23:31
Reglur í Haustleik Selfoss-Getrauna
1. grein
Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi Selfoss. Tveir einstaklingar mynda hvern hóp og gefa honum nafn til aðgreiningar frá öðrum hópum. Þátttökugjald er kr. 4.000.- fyrir hvern hóp og greiðist við skráningu með reiðufé.

2. grein
Hóparnir spila allir í einum riðli.

3. grein
Hópurinn sendir inn tvo seðla á www.tippleikur.is/selfoss eða til Selfoss-getrauna samanber 4. grein. Þessir tveir seðlar skulu hvor um sig innihalda 7 leiki með einu merki og 6 leiki með tveimur merkjum (tvítryggingum).

4. grein
Raðirnar skulu vera komnar til Selfoss-getrauna fyrir lokun sölukerfis Íslenskra getrauna. Tekið er á móti röðunum á laugardögum í Tíbrá frá kl. 11:00 til 13:00. Einnig er hægt að senda raðirnar getraunir@umfs.is eða hringja á laugardögum í síma 894-5070.

5. grein
Keppnin stendur yfir í 10 vikur og gilda bestu átta vikur hvers liðs.

6. grein
Raðirnar sem hóparnir senda inn fara ekki sjálfkrafa í sölukerfi Íslenskra getrauna, heldur þarf hver hópur að senda þær þangað sérstaklega.

7. grein
Gleymi hópur að senda inn raðir gildir lægsta skor vikunnar í þeim riðli sem viðkomandi hópur er í.

8. grein
Þegar lið eru jöfn í keppninni þá telst það lið ofar sem er með fleiri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar þeir leikir eru skoðaðir er varpað hlutkesti.
04.05.2009 23:11
Naut er sigurvegari í Vorleiknum
Naut sigruðu TK-Frikka 10-9 í úrslitaviðureign Meistaradeildarinnar og eru því sigurvegarar í Vorleik Selfoss-Getrauna. Til hamingju með glæsilegan árangur.

Minnum á að opið verður í Tíbrá þrjá næstu laugardaga eða þar til lokaumferð enska boltans fer fram.
02.05.2009 14:58
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar
Svona tippuðu liðin í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hópur: Naut
Gestur Þráinsson 1 1 2 - 1x 1 1 - 12 1x 1 - 12 1 x2 12
Hallgrímur Gunnarsson 1 1 2 - 1x 1 1x - 12 12 1 - 1 1 1x 12
-----------------------------

Hópur: TK-Frikki
Örvar Hlíðdal 1 1x 2 - 1x 1 x - x2 1x 1x - 1x 1 1 1
Guðbergur Kristjansson 1x 12 2 - 2 1 1x - 2 1 2 - 1 1x 1x 1x

26.04.2009 15:14
Lokastaðan í Meistaradeildinni og Baróninum
Búið er að uppfæra stöðuna eftir lokaumferðina, en í henni leynist þá sá galli að leikur 9 (Birmingham-Preston) er vitlaust færður inn. Það breytir þó ekki niðurstöðu leiksins að Naut og TK-Frikki mætast í úrslitum Meistaradeildarinnar og Heitu Sporarnir hafa tryggt sér öruggan sigur í Baróninum.
25.04.2009 10:06
Staðan fyrir lokaumferð meistaradeildarinnar og Barónsins
Þá er búið að uppfæra stöðuna í tippleiknum, en það hefur dregist vegna ótryggs stjórnmálaástands í landinu! :)
18.04.2009 18:32
Potturinn í dag
Stóri seðillinn skilaði 12 réttum og tæplega 3000 kr í vinning... sem í samræmi við væntingar erlendra kröfuhafa. :)

Enski boltinn
Ú-Kerfi 10-0-1653
Leikvika 16 2009
Miði keyptur: 18.04.09
kl. 12:57:18

Nr. Leikur. Rétt
1 Arsenal - Chelsea 1X2 1
2 Aston Villa - West Ham 1
3 Middlesbro - Fulham 1X2 X
4 Portsmouth - Bolton 1X2 2
5 Stoke - Blackburn 1X2 1
6 Sunderland - Hull 1X2 1
7 Preston - Cardiff 1X2 X
8 Watford - Birmingham 1X2 2
9 Crystal Palace - Derby 1X2 1
10 Nott.Forest - Coventry1X2 X
11 Sheff.Wed. - Southampt1X2 1
12 Swansea - Bristol C. 1
13 Wolves - Q.P.R. 1

Verð: 19.836 kr.

Áætlaðar vinningsupphæðir

Réttir Fjöldi Upphæð Samtals
13 0 143.000 0
12 1 1.860 1.860
11 4 230 920
10 6 0 0
Samtals 2.870

Þú ert með mest 12 rétta
11.04.2009 21:14
Staðan eftir 2 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna að loknum 2 umferðum í Meistaradeildinni og Baróninum.
08.04.2009 10:00
Fyrstu umferð lokið
Nú er búið að draga í riðla í Meistaradeildinni og uppfæra stöðuna að lokinni fyrstu umferð.

Til að allt sé á hreinu þá hefur umsjónarmaður þegar bætt einu aukastigi á sigurvegara riðlanna þ.e. FC Vaðnes, HS Club, Selhús og TK-Frikki. Þau voru í raum með einum leik færra réttan en segir í 14. leikviku.

Í Baróns keppninni hefur Selós tekið afgerandi forystu með einungis 4 rétta. Rétt er að benda á að hópar sem ekki skila inn tveimur staðfestum spám fá 0 rétta og teljast ekki með í leiknum.
29.03.2009 23:54
Liðin sem keppa um Baróninn
Þau lið sem ekki komast í Meistaradeildina keppa um Baróninn, kenndan við Gísla í Barón og jafnframt helsti styrktaraðili keppninnar um Baróninn.

Keppnin er með eilítið breyttu sniði því nú gildir að vera með sem fæsta rétta. Það lið sem slökustum árangri nær vinnur glæsileg verðlaun frá Barón. Tekið skal fram að hærra skor gildir, þ.e. nái annar liðsmaður 2 réttum en hinn 4 þá telst liðið hafa náð 4 réttum. Skili lið ekki tveimur röðum fær það hæsta skor í viðkomandi leikviku.
29.03.2009 23:50
Liðin í Meistardeildinni
Eftirtalin lið komust í Meistaradeildina:
FC Vaðnes, Ísbjörninn, Botna, Tígull sr, HS Club, Mosdal, Málarar, Havana club, Selhús, Randver, TK Frikki, Höfðingjar, Naut og Stelpurnar.

Keppni hefst í næstu viku (14. leikviku).
29.03.2009 23:45
Lokastaðan í riðlakeppninni
Þegar búið er að draga frá slökustu vikuna í riðlakeppninni var staðan svona:

A-Riðill
FC Vaðnes 79 (20 útisigra)
Ísbjörninn 79 (13 útisigra)
Botna 76
Tígull sr 74 (20 útisigrar)
Aðrir minna

B-Riðill
HS Club 79
Mosdal 76 (23 útisigrar)
Málarar 76 (18 útisigrar)
Havana club 75
Bond 74 (17 útisigrar og 20 jafntefli)
Heitu sporarnir 74 (14 útisigrar)
Aðrir minna

C-Riðill
Selhús 78
Randver 76
Forest FC 74 (14 útisigrar)
Aðrir minna

D-Riðill
TK Frikki 78
Höfðingjar 76
Naut 75
Stelpurnar 74 (17 útisigrar og 25 jafntefli)
Aðrir minna

Sigurvegarar riðils fá eitt aukastig í Meistaradeildina.

Til að fylgja settum reglum þá þurfti að finna sex stigahæstu liðin utan tveggja efstu sætanna. Vanalega er það ekki vandamál því mörg lið hafa jafnan náð jafngóðu skori og lið númer 2 í einhverjum hinna riðlanna.

Nú þurfti hins vegar að grípa til þess að skoða neðar töfluna. Botna og Málarar voru með 76 stig og örugg áfram. Havana club og Naut voru með 75 stig og því 3. og 4. stigahæsta liðið utan toppliða.

Fjögur lið voru með 74 stig. Tígull sr, Bond, Heitu sporarnir, Forest FC og Stelpurnar. Tígull sr var með flesta útisigra eða 20 og kemst því áfram. Bond og Stelpurnar voru með 17 á meðan Heitu sporarnir og Forest FC voru einungis með 14. Því þurfti að skoða jafntefli til að skera úr um hvort Bond eða Stelpurnar yrðu sjötta stigahæsta liðið utan toppliðanna í hverjum riðli. Þar reyndust Stelpurnar með 25 jafntefli og komast því áfram á meðan Bond situr eftir með 20 jafntefli ásamt Forest FC og Heitu sporunum.

Umsjónarmaður vonast til að útreikningar séu réttir en hvetur fólk að hafa samband með ábendingar á getraunir@umfs.is eða 8945070.
25.03.2009 08:13
Hátíðarkvöldverður
Hátíðarkvöldverðurinn verður föstudaginn 27. mars í Tíbrá milli kl. 20:00 og 22:00.

Matur, verðlaunaafhendingar vegna Haustleiks 2008 og skemmtiatriði.

Hlökkum til að sjá ykkur.
Selfoss-Getraunir og 2. fl. karla og kvenna.
22.03.2009 09:50
Staðan fyrir lokaumferðina í riðlakeppninni
Þá er búið að uppfæra stöðuna eftir 9. umferð og einungis lokaumferðin eftir í riðlakeppninni.
21.03.2009 09:28
Hátíðarkvöldverður Selfoss-Getrauna
Föstudaginn 27. mars bjóða Selfoss-Getraunir og 2. fl. kvenna og karla til glæsilegs hátíðarkvöldverðar í Tíbrá.

Við viljum biðja þig að gera félaginu okkar þann heiður að mæta í Tíbrá milli kl. 20:00 og 22:00 og eiga með okkur skemmtilega kvöldstund. Við mælumst til þess að þú takir fjölskylduna með þér og gerir samkomuna þannig enn skemmtilegri fyrir okkur öll.

Boðið verður upp á glæsilegan kvöldverð ásamt verðlaunaafhendingum fyrir sigurvegara í Haustleiknum. Einnig verður boðið upp á skemmtiatriði.

Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku til Gissurar í síma 894-5070 eða getraunir@umfs.is fyrir miðvikudag 25. mars.

Bestu kveðjur með von um góða þátttöku.
Selfoss-Getraunir og 2. fl. karla og kvenna.
21.03.2009 09:11
Staðan þegar tvær umferðir eru eftir
Nú er búið að uppfæra stöðuna að loknum 8 umferðum og því einungis tvær umferðir eftir af riðlakeppninni.
08.03.2009 21:18
Staðan að loknum 7 umferðum
Búið er að uppfæra stöðuna að loknum 7 umferðum í Vorleik Selfoss-Getrauna.
01.03.2009 21:53
Staðan eftir 6. umferð
Nú er búið að uppfæra stöðuna að loknum 6 umferðum.
27.02.2009 21:59
Greiðsla þátttökugjalds
Athygli er vakin á því að enn eiga nokkrir hópar eftir að ganga frá greiðslu þátttökugjalds í Vorleik Selfoss-Getrauna 2009.

Hægt er að ganga frá greiðslu kr. 2000 á einstakling (kr. 4000 á hóp) með því að leggja inn á reikning 586-14-603900 kt. 180476-3699.

Rétt er að benda á að kröfur verða ekki sendar í innheimtu en dragist greiðsla úr hófi gætu skuldunautar átt á hættu að vera skráðir í Sjálfstæðisflokkinn.
23.02.2009 22:25
Staðan að loknum 5 umferðum
Búið er að uppfæra stöðuna að loknum 5 umferðum.
12.02.2009 23:44
Dráttur og uppfærsla
Þá er loksins búið að draga í riðla í Vorleik Selfoss-Getrauna. Jafnframt er búið að uppfæra stöðuna að loknum þremur umferðum.
04.02.2009 22:23
Dráttur á uppfærslu stöðunnar
Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem orðið hafa á uppfærslu nýs hópleiks. Besðist er afsökunar á töfunum.
Gissur
22.01.2009 23:38
Vorleikur Selfoss-Getrauna hefst á laugardag
Ágæti félagi

2. flokkur kvenna og karla, Selfoss-Getraunir og Guðnabakarí bjóða þér í kaffi og meðlæti í Tíbrá alla laugardaga kl. 11.

Við hjá Selfoss-Getraunum erum með öflugt félagsstarf og opið hús alla laugardaga í vetur milli kl. 11 og 13. Þangað getur þú komið í kaffi, hitt gamla félaga og kynnst nýjum úr okkar skemmtilega hópi.

Enn fremur getur þú tekið þátt í innanfélagsleik okkar í getraunum og sýnt snilli þína á því sviði en vorleikur Selfoss-Getrauna hefst einmitt n.k. laugardag, þann 24. janúar. Kunnir þú ekki að tippa þá eru sérfræðingar okkar boðnir og búnir að aðstoða þig. Hafir þú ekki áhuga á að tippa er það líka í góðu lagi, svo framarlega sem þú mætir með góða skapið.

Hlökkum til að sjá þig!
2. fl. kvenna og karla og Selfoss-Getraunir.
29.12.2008 15:08
Sigurvegari í Haustleik Selfoss-Getrauna 2008
Það er ljóst að brottrekstur stjóra piltanna úr Skíraskógi hefur þegar haft umtalsverð áhrif þar sem Forest FC lagði þá félaga í HS club að velli með 6 vinningum gegn 5. Forest FC eru því Haustmeistarar Selfoss-Getrauna 2008.

Til hamingju með glæsilegan árangur Forest FC.
28.12.2008 13:51
Úrslitaleikur Haustleiks Selfoss-Getrauna í beinni
HS club
Helgi Jens Hlíðdal 2 1 1x - 1 1 x2 - 1x x 12 - 1 1x x2 1
Sigurður Skagfjörð x2 1 12 - 1x 1 12 - 1 x2 1 - 1 1x 2 1

Forest FC
Sigdór Vilhjálmsson 2 1 12 - 1 1 x2 - 1 1x 1x - 1 1x x2 1
Vilhjálmur Sigdórsson x2 1 12 - 1 1 2 - 1x 1x 1x - 1 1x 2 1
22.12.2008 21:22
Lokastaðan í Meistaradeildinni og Hamrinum
Þá er ljóst að HS club og Forest FC mæstast í úrslitum Haustleiks Selfoss-Getrauna 2008. Úrslitaleikurinn fer fram næstkomandi sunnudag. Lokað er fyrir sölukerfi Íslenskra getrauna kl 1300 sunnudaginn 28. desember. Við verðum hins vegar að sjálfsögðu með opið laugardaginn 27. desember eins og alla laugardag í vetur.

Eyjapæjurnar Edda og Alexandra báru sigur úr býtum í harði keppni um Hamarinn þar sem þær voru með fleiri útisigra en Málararnir.

Kærar þakkir fyrir frábæra mætingu í dögurðinn okkar. Þetta var afar skemmtilegt og vonandi að allir hafi notið matarins.

Að lokum óska Selfoss-Getraunir tippurum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla.
18.12.2008 22:56
Dögurður Selfoss – Getrauna og lokaumferðin í Meistaradeildinni
Selfoss – Getraunir bjóða öllum tippurum í dögurð (brunch) laugardaginn 20. desember.

Dögurðurinn hefst kl. 11:30 í Tíbrá félagsheimili UMF. Selfoss.

Að sjálfsögðu hvetja Selfoss - Getraunir tippara til að taka maka sinn og börn með því getraunastarf er félagsstarf fyrir alla fjölskylduna. Mætum öll og eigum notalega stund saman í léttu spjalli og góðum mat.
Hlökkum til að sjá þig.

Minnum á að lokaumferð Meistaradeildarinnar og Hamarsins fer fram á laugardag auk þess sem Jólastressið er nú í fullum gangi.

Jafnframt biðstu umsjónarmaður afsökunar á þeirri leiðindavillu sem slæddist inn að þeir félagar í HS club hefðu lítið vit á enskri knattspyrnu en engar skriflegar heimildir munu vera til sem styðja það.
15.12.2008 23:13
Staðan fyrir lokaumferð Meistaradeildarinnar og Hamarsins
Búið er að uppfæra stöðuna fyrir lokaumferðina. Ljóst er að Hvolsvellingar hafa fært sig upp á skaftið og stefna ótrauðir á úrslitin þrátt fyrir lítið vit á enskri knattspyrnu. Staðan í B-riðlinum er hins vegar mun meira spennandi.

Einnig er keppni hinna minni spámanna um Hamarinn spennandi og hafa nokkrir hópar sýnt góða spretti.
13.12.2008 10:14
Jólastressið í fullum gangi
Nú er önnur vikan í jólastressinu. En að lokinni fyrstu viku voru Hikandi og Gosar með 11 rétta en Sir, Skattur, Naut, 503, Tígull, Botna og Bond voru með 10 rétta.
05.12.2008 23:41
Jóla-Dögurður laugardaginn 20. desember
Það er Selfoss-Getraunum sérstök ánægja að bjóða þátttakendum í Haustleiknum og fjölskyldum þeirra í glæsilegt og gómsætt Jólabröns laugardaginn 20. desember nk. Dögurðurinn hefst kl. 11:30 þar sem TÞ mun bjóða bragðlaukunum upp í dans. Vonumst til að sjá ykkur öll.

ATH. breytta dagsetningu
05.12.2008 23:25
Búið er að uppfæra stöðuna í Meistaradeildinni
Þá er loksins búið að uppfæra stöðunna í úrslitakeppninni. Jafnframt er bent á að sigurliðin í hverjum riðli (Þruman, Babu Bergs, FC Vaðnes og Stelpurnar) fá eitt stig í forgjöf í Meistaradeildina. Þessu stigi var bætt á þau í 48. leikviku og því er staðan nákvæmlega eins og hún á að vera.
29.11.2008 10:12
Dregið í riðla Meistaradeildarinnar
Dregið verður í riðla í Tíbrá í dag að viðstöddum fulltrúa sýslumanns.
29.11.2008 10:09
Röðin hjá Íslenskum getraunum hækkar í 17 kr.
Íslenskar getraunir hafa tilkynnt um hækkun. Frá og með 1. desember kostar röðin 17 krónur (íslenskar) í stað 12 króna (íslenskra). Þetta þýðir það að seðill með sex tvítryggingum kostar 1088 krónur.

Sjá nánar tilkynningu Íslenskra getrauna.
Lesa meira
24.11.2008 22:17
Lokastaðan er komin á vefinn
Nú er búið að draga frá slökustu vikuna og ljóst að 76 stig dugðu til að komast í Meistaradeildina. Efsta liðið í hverjum riðli fær eitt stig í forgjöf inn í Meistaradeildina.

Þar sem búið er að skilja hafrana frá er ljóst að sauðirnir keppa um hinn lítt eftirsótta Hamar!

Ef villur kunna að leynast í útreikningum er bent á netfangið getraunir@umfs.is
24.11.2008 22:09
D-Riðill Lokastaðan
Stelpurnar 92-7=85
Hallgerður Langbrók 89-7=82
Tígull sr 87-6=81
Ísbjörninn 84-6=78
-----------------------------
Eyjar 80-5=75
Tígull jr 78-6=72
Barón 74-6=68
Stjórarnir 69-5=64
24.11.2008 22:06
C-Riðill Lokastaðan
FC Vaðnes 85-5=80
HS Club 84-6=78
-----------------------------
Selhús 82-7=75
Havana club 81-6=75
Heitu sporarnir 79-6=73
Andrinho 75-4=71 (21 útisigur og 13 jafntefli)
Naut 76-5=71 (21 útisigur og 9 jafntefli)
Bílasala Selfoss 76-5=71 (18 útisigrar)
24.11.2008 21:59
B-Riðill Lokastaðan
Babu Bergs 83-6=77
Hákur 81-5=76 (22 útisigrar)
Forest FC 82-6=76 (21 útisigur)
Catan 82-6=76 (20 útisigrar)
Merida 81-5=76 (18 útisigrar)
-----------------------------
Málarar 89-5=75
Royal Arsenal 77-3=74
Tobbar 71-3=68
24.11.2008 21:53
A-Riðill Lokastaðan
Þruman 86-6=80
Bond 85-6=79
Botna 84-6=78
Tundra 84-7=77
Höfðingjar 82-6=76
-----------------------------
Mosdal 78-5=73
TK-Frikki 75-5=70
Selós 72-5=67
23.11.2008 21:06
Staðan eftir lokaumferðina
Búið er að uppfæra stöðuna í riðlunum eftir lokaumferðina. Enn er þó eftir að birta endanlega stöðu þar sem lélegasta vika hvers hóps dettur út. Því gætu smávægilegar breytingar orðið á því hverjir komast í Meistaradeildina og hverjir þurfa að sætta sig við keppni um hinn lítt eftirsótta Hamar.
16.11.2008 22:03
Staðan fyrir lokaumferðina
Þá er búið að uppfæra stöðuna að loknum 9 umferðum. Merkilegt er að D-riðill er langsterkasti riðillinn þar sem bestu tippararnir virðast safnast saman og ekki síður að kvenkyns hópar tippa betur en aðrir! :)
01.11.2008 22:26
Staðan að lokinni 7. umferð
Þá er búið að uppfæra stöðuna að loknum sjö umferðum í riðlakeppninni. Nú fer að færast fjör í leikinn enda einungis þrjár umferðir eftir áður en hafrarnir skilja sig frá sauðunum.
26.10.2008 22:52
6. umferð og 13 réttir
Búið er að uppfæra stöðuna að lokinni 6. umferð og eins og glöggir lesendur taka eftir voru 13 réttir í húsi hjá einum hóp. Segja má að hópurinn hafi málað aðra keppendur út í horn!
18.10.2008 22:23
Staðan eftir 5. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna í haustleiknum að loknum fimm umferðum.
17.10.2008 21:40
4. umferð og nokkrir með 13 rétta!
Loksins er búið að uppfæra stöðuna í haustleiknum eftir fjórar umferðir.

Einnig er gaman að geta þess að tveir hópar voru með 13 rétta og skilaði annar hópurinn röðinni inn til Íslenskra getrauna... hinn er bara í kreppu! :-)
04.10.2008 21:56
3. umferð
Búið er að uppfæra stöðuna eftir 3. umferð haustleiksins.
28.09.2008 22:48
Dráttur í riðla og búið að uppfæra 2. umferð
Þá er búið að draga í 4 riðla og uppfæra stöðun eftir tvær umferðir.
24.09.2008 23:33
Búið er að uppfæra stöðuna eftir 1. umferð
Nú er búið að uppfæra stöðuna eftir 1. umferð en ekki er búið að draga í riðla. Dregið verður í riðla þegar 2. umferð er lokið.
23.09.2008 19:05
Bið á uppfærslu stöðunnar
Því miður er ekki enn búið að færa úrslit seinustu helgar inn í tippleiknum og verður því bið á því að staða í riðlum verði uppfærð. Beðist er velvirðingar á töfunum.
16.09.2008 17:31
Haustleikur Selfoss-Getrauna
Haustleikur Selfoss-Getrauna hefst um helgina. Leikurinn verður með sama hætti og seinasta vetur. Hvetjum við alla til að taka þátt og draga fleiri með sér. Upplagt að hita upp á laugardag með því að mæta í Tíbrá og tippa á leiki helgarinnar.

Opið frá 11-13. Kaffi og meðlæti í boði Guðnabakarís og að sjálfsögðu hvetjum viða alla til að mæta.
15.08.2008 14:43
Opið á ný í tippstofu Selfoss Getrauna
Á morgun rúllar enski boltinn á ný og því opnum við tippstofuna í Tíbrá. Opið er milli 11 og 13 á laugardögum í vetur.
Hlökkum til að sjá ykkur í léttu spjalli yfir seðli vikunnar.
12.05.2008 23:36
Úrslit í Meistaradeildinni
Glímukapparnir tóku Höfðingjana á hælkrók vinstri í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Lokastaðan var 11 á móti 9 þegar úrslitin í leikjum helgarinnar lágu fyrir. Glímukappar eru því sigurvegarar í vorleik Selfoss-Getrauna 2008.

Til hamingju Glímukappar. :)
10.05.2008 13:37
Úrslitaleikur í Meistaradeildinni í beinni
Glímukappar
Kjartan Lárusson 1 1x 1 2 1 12 x2 2 1 12 x2 2 x2
Sigurður Einar Einarsson 1x 1x 1 2 1 1x 12 2 1 1 12 2 12

Höfðingjar
Helgi Bergmann Sigurðsson 1 1x 1 1x 1 1 12 2 12 1x 2 2 12
Páll Leó Jónsson 1x 1x 1x 1x 1 1 2 x2 2 1 1 2 x2

04.05.2008 23:41
Glímukappar og Höfðingjar mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
Glímukappar urðu öruggir sigurvegarar í A-Riðli Meistaradeildarinnar og unnu sér þar með sæti í úrslitaleiknum. Þar sem ómögulegt er að gera upp á milli Þórs & Danna og Höfðingja í B-Riðli þurfti að grípa til þess ráðs að varpa hlutkesti eins og kveðið er á um í 8. grein regla hópleiks Selfoss-Getrauna. Var hlutlaus aðili fenginn til að varpa hlutkestinu og urðu Höfðingjar ofan á.

Því munu Glímukappar og Höfðingjar mætast í úrslitaleiknum um næstu helgi og verður hann að sjálfsögðu í beinni útsendingu hér á www.tippleikur.is/selfoss
04.05.2008 23:19
Bond er sigurvegari í Hamrinum
Úrslitin réðust í Hamrinum um helgina þar sem Bond-stúlkurnar unnu nauman en glæsilegan sigur með 34 stig og fleiri útisigra en Botna sem einnig náði 34 stigum. Óskum við Bond til hamingju með árangurinn. :-)
03.05.2008 11:01
Lokahóf vorleiks
Mikið húllum hæ verður laugardaginn 31. maí en þá verður slegið saman lokahófi vorleiks Selfoss-Getrauna og frumsýningu á Sögu knattspyrnunnar á Selfossi.

Nánar auglýst síðar.
27.04.2008 19:43
Staðan fyrir lokaumferðina í Meistaradeildinni og Hamrinum
Búið er að uppfæra stöðuna að lokinni þriðju umferð úrslitakeppninnar. Til mikils er að vinna og verður hörkuspennandi keppni um næstu helgi þar sem það ræðst hverjir mætast í úrslitaleiknum.

Rétt er að minna á að í A-riðli eru Tígull jr, Glímukappar og Mosdal með eitt aukastig fyrir sigur í sínum riðli og í B-riðli eru Árborg A, Royal Arsenal og Tobbar með eitt aukastig sem eftir er að færa inn.

Jafnframt er umsjónarmanni ljúft og skylt að benda á að mistök urðu við skráningu á lokastöðu í E-riðli. Hefur það verið leiðrétt en sem betur fer hafði það ekki áhrif á efsta sætið og þar með Meistaradeildina. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
25.04.2008 09:43
Bjórkvöld stuðningsmannaklúbbsins
Á Föstudaginn næsta þann 25. apríl er fyrirhugað að halda bjórkvöld og kynningu á leikmönnum mfl. karla fyrir sumarið 2008.

Við munum hittast í Tryggvaskála og eiga góða kvöldstund saman frá kl. 20:00 til miðnættis.

Uppúr kl. 21:00 mun Tómas Þóroddsson stíga í pontu og kynna leikmenn og þjálfara ásamt aðstoðarmönnum liðsins í sumar, síðan mun aðstoðarþjálfarinn fara yfir sumarið og helstu áherslur og einnig svara fyrirspurnum úr sal.

Þegar að því er lokið mun óvænt uppákoma líta dagsins ljós og veit ég að menn eru spenntir að sjá hvað verður boðið uppá.

En ég skora á alla að mæta og láta boðskapinn berast, það er um að gera að fara að koma stuðningsmönnunum í rétta gírinn fyrir sumarið það er nú bara rétt tæpur mánuður í fyrsta leik.

Sem sagt: Tryggvaskáli á föstudaginn 25. apríl kl. 20:00.
Kaldur á kantinum fyrir þá sem það kjósa á góðu verði, og að sjálfsögðu góða skapið og stemmningin með í för.

Hvetjum alla til að mæta konur og karla, unga sem aldna. Verðum samt að setja aldurstakmörk og eru þau 18 ára.
19.04.2008 18:31
Staðan að lokinni 2. umferð í Meistaradeildinni og Hamrinum
Búið er að uppfæra stöðuna í Meistaradeildinnni og Hamrinum að loknum 2 umferðum. Við minnum á að sigurvegarar hvers riðils tók með sér eitt stig í Meistaradeildina, þ.e. Tígull jr, Glímukappar, Mosdal, Tobbar, Árborg A og Royal Arsenal.
13.04.2008 23:37
1. umferð Meistaradeildar er lokið
En ekki er unnt að færa inn stöðu því umsjónarmaður bíður eftir því að vefstjóri uppfæri úrslitariðlana. Þess ber þó að geta að búið er að draga í riðla.

A-riðill: Tígull jr, Glímukappar, Mosdal, Tígull sr, Framsókn, Ísbjörninn, Dýrin, FC Vaðnes, TK-Frikki, Hallgerður Langbrók, Týr, Babú Bergs, Stelpurnar og Eyjar.

B-riðill: Tobbar, Árborg A, Royal Arsenal, Málarar, Merida, Þór & Danni, Blikk ehf, Eðalhús, Naut, Árborg B, Höfðingjar, Zorro og Heitu sporarnir.
06.04.2008 11:43
Keppni í Meistaradeildinni og Hamrinum hefst í 15. leikviku 2008
Nú er ljóst hvaða hópar unnu sér þátttöku í Meistaradeildinni og hvaða lið þurfa að bíta í það súra epli að keppa um Hamarinn. Ef villur leynast í lokastöðunni þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita í síma 894-5070 eða í Tíbrá næsta laugardag.

Dregið verður í riðla í dag.

Nánar um Meistaradeildina og Hamarinn.
Lesa meira
06.04.2008 11:34
F - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Tobbar 70 stig (hentu 7 og 8)
2. Naut 67 stig (7 og 8)
3. Hallgerður Langbrók 66 stig (7 og 6)
4. Framsókn 63 stig (8 og 8)

Tobbar taka 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegarar riðilsins.

Í Hamarinn fara:
5. Andrinho 61 stig (7 og 6)
6. Toto 57 (6 og 7)
7. Garpar 55 (6 og 6)
8. Tipparar vikunnar 54 (6 og 6)
06.04.2008 11:28
E - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Mosdal 70 stig (henti 8 og 9)
2. Stelpurnar 68 stig (8 og 9)
3. Babu Bergs 68 stig (7 og 7)
4. Heitu sporarnir 64 stig (5 og 8)

Mosdal tekur 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegari riðilsins.

Í Hamarinn fara:
5. Snillar 62 stig (7 og 7)
6. Botna 62 (5 og 7)
7. Randver 61 (6 og 7)
8. Meyjarnar 52 (5 og 6)
06.04.2008 11:22
D - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Glímukappar 69 stig (hentu 8 og 8)
2. Höfðingjar 66 stig (5 og 8)
3. Týr 64 stig (6 og 7)
4. TK-Frikki 63 stig (7 og 7)
5. Eðalhús 63 stig (7 og 7)

Glímukappar taka 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegarar riðilsins.

Í Hamarinn fara:
6. Ískalt 56 (6 og 7)
7. Tundra 55 (5 og 6)
8. Berghólar 55 (5 og 6)
06.04.2008 11:15
C - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Árborgir A 67 stig (hentu 7 og 8)
2. Tígull sr 67 stig (7 og 7)
3. Blikk ehf 67 stig (7 og 7)
4. Árborgir B 66 stig (5 og 8)
5. Þór&Danni 66 stig (6 og 8)
6. Málarar 65 (5 og 8)
7. Merida 64 (6 og 8)

Árborgir A taka 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegarar riðilsins. Árborgir A eru efstir vegna flestra útisigra réttra.

Í Hamarinn fer:
8. Selhús 61 (5 og 7)
06.04.2008 10:56
B - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Royal Arsenal 66 stig (henti 7 og 8)
2. Eyjar 64 stig (7 og 8)
3. Ísbjörninn 64 stig (7 og 7)
4. FC Vaðnes 64 stig (6 og 8)
5. Zorro 63 stig (7 og 7)

Royal Arsenal tekur 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegari riðilsins.

Í Hamarinn fara:
6. Bílasala Selfoss 60 (6 og 5)
7. Arsenal 55 (7 og 7)
8. Kahn og Lehmann 54 (6 og 5)
06.04.2008 10:43
A - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Tígull jr 64 stig (henti 6 og 7)
2. Dýrin 63 stig (6 og 7)

Tígull jr tekur 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegari riðilsins.

Í Hamarinn fara:
3. Selós 62 (7 og 7)
4. Bond 62 (5 og 7)
5. Forest FC 62 (6 og 8)
6. Þruman 60 (6 og 7)
7. Zeppelin FC 58 (7 og 7)
8. Samtökin 78 54 (5 og 6)
03.04.2008 22:29
Úrslit í 13. leikviku - staðan fyrir lokaumferð riðlakeppninnar
Búið er að uppfæra stöðuna í Vorleik Selfoss-Getrauna. Nú er lokavikan framundan og spennan óbærileg!!!

MUNA SUMARTÍMA Á LAUGARDAG. SÖLUKERFIÐ LOKAR KLUKKAN 13:00... allir að láta Gísla vita! :)
29.03.2008 13:29
Sumartími hjá Getraunum
Minnum á að sölukerfi Íslenskra getrauna lokar kl 13:00 næstkomandi laugardag vegna þess að sumarið er komið í Evrópu.

Viljum við biðja tippara að vera tímanlega næsta laugardag svo hægt verði að ganga frá sölu á öllum seðlum fyrir lokun.
25.03.2008 15:50
Umsjónarmaður Selfoss-Getrauna auglýsir...
...eftir fólki sem hefur áhuga á að sjá um getraunastarfið á Selfossi í samráði við umsjónarmann. Ljóst er að fyrir næsta keppnistímabil er nauðsynlegt að fjölga umsjónarmönnum Selfoss-Getrauna til að dreifa álagi á laugardögum.

Umsjónarmaður, sem getur hvort heldur sem er verið karl eða kona, þarf að vera mörgum kostum búinn. Nauðsynlegt er í starfi umsjónarmanns að vera greindur, skemmtilegur, fyndinn, fjölhæfur, ráðagóður, hæfileikaríkur, efnilegur, góður og umfram allt fallegur.

Þetta er eins og tipparar vita hæfileikir sem eru mikið nýttir í starfi umsjónarmanns! :)

Áhugasamir eða þeir sem vita um áhugasama hafi samband við Gissur í síma 894-5070.
10.03.2008 21:41
Leikreglur í Vorleik Selfoss-Getrauna 2008
Til að forðast allan misskilning (og vælið í meðlimum hópsins með brasilíska nafnið) :) er rétt að ítreka að 5. grein leikregla hópleiksins er sem á eftir kemur. Gildir þessi frétt umfram textann undir hlekknum "leikreglur" hér til vinstri.

5. grein
Riðlakeppni stendur yfir í 9 vikur og gilda bestu sjö vikur hvers hóps. Að henni lokinni fara tveir efstu hóparnir úr hverjum riðli, auk hópanna sem ná jafnmörgum stigum og lakasta skorið í öðru sæti, í tvo Meistaradeildarriðla þar sem keppt er í fjórar vikur. Verði lið jöfn gilda ákvæði 8. greinar. Efstu liðin úr hvorum riðli keppa síðan til úrslita um sæmdarheitið Hópleikjameistari - Selfoss-Getrauna. Þau lið sem eru efst í sínum riðli taka með sér eitt stig í úrslitin. Þau lið sem ekki komast í Meistaradeildarriðla keppa á sama tíma í einum riðli um "Hamarinn".

Svo þarf ekki að ítreka að vald umsjónarmanns er skv. leikreglum einræðis og verður ekki haggað! :)
09.03.2008 22:25
Ýmislegt sem miður fór!
Hlutabréfapotturinn fór ekki vel! Skilaði hvor seðill 8 réttum sem þykir nokkuð fyrir neðan væntingar.

Kerfisstjóri www.tippleiks.is hefur ekki enn fært inn úrslit helgarinnar og því verður staðan í hópleiknum ekki uppfærð fyrr en á mánudag.
08.03.2008 14:22
Hlutabréfapottur - seðillinn
Keyptir voru tveir útgangsmerkjaseðlar

Enski boltinn
Ú-Kerfi 7-0-939
Leikvika 10 2008
Miði keyptur: 08.03.08
kl. 13:54:53

Nr. Leikur.
1 Liverpool - Newcastle 1
2 Blackburn - Fulham 1
3 Reading - Man.City 1X2 2
4 Blackpool - Southampton 1X2 1
5 Coventry - Norwich 1X2 X
6 Leicester - Bristol City 1X2 2
7 Sheff.Wed. - Q.P.R. 1X2 2
8 Stoke - Burnley 1
9 Sunderland - Everton 1X2 2
10 Tottenham - West Ham 1X2 1
11 Wigan - Arsenal 2
12 Barnsley - Chelsea 2
13 Bristol Rovers - W.B.A. 2

Enski boltinn
Ú-Kerfi 7-0-939
Leikvika 10 2008
Miði keyptur: 08.03.08
kl. 13:54:53

Nr. Leikur.
1 Liverpool - Newcastle 1
2 Blackburn - Fulham 1
3 Reading - Man.City 1X2 2
4 Blackpool - Southampton 1X2 1
5 Coventry - Norwich 1X2 X
6 Leicester - Bristol City 2
7 Sheff.Wed. - Q.P.R. 1X2 2
8 Stoke - Burnley 1X2 1
9 Sunderland - Everton 2
10 Tottenham - West Ham 1
11 Wigan - Arsenal 1X2 2
12 Barnsley - Chelsea 2
13 Bristol Rovers - W.B.A. 1X2 2

08.03.2008 14:21
Tíglarnir hlaða inn vinningum
Umsjónarmanni er það ljúft og skylt að geta þess að Tiglarnir hinir eldri vildu ekki vera eftirbátar unglinganna og sóttu stóran vinning fyrir 11 rétta um seinustu helgi!
06.03.2008 22:54
Hlutabréfapottur á laugardaginn
Enginn tippari var með 13 rétta síðastliðinn laugardag og verður því sannkallaður RISAPOTTUR á laugardaginn. Eins og venjulega verða Selfoss-Getraunir með hlutabréfapott um helgina.

Í hlutabréfapotti geta tipparar keypt eins mörg hlutabréf og þeir vilja í sameiginlegum potti sem Selfoss-getraunir kaupa.

Athugið að einungis er tekið við beinhörðum peningum og staðgreiðslu er krafist.

Seðillinn birtist svo hér á www.tippleikur.is/selfoss á laugardag.
04.03.2008 23:47
Tæknilegir örðugleikar!
Ekki er búið að ganga endanlega frá stöðunni eftir leikviku 9. Mun það verða lagað á morgun miðvikudag.
01.03.2008 00:18
Umsjónarmaður í starfsþjálfun í Englandi!
Vegna utanlandsferðar umsjónarmanns Selfoss-Getrauna mun sjóarinn síkáti Tommi sjá um getraunastarfið á laugardag. Biðjum við alla tippara að sína honum þolinmæði í þessu vandasama starfi. Jafnframt er rétt að geta þess að staðan í tippleiknum verður ekki uppfærð fyrr en á þriðjudag.
01.03.2008 00:15
13 réttir hjá Selfoss-Getraunum
Sérlega ánægjulegt er að greina frá því að 13 réttir komu í hús í Tíbrá seinast laugardag og eins og sést í stöðu hópleiksins var það hópurinn Tígull jr. sem var svo getspakur. Óskum við þeim félögum hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Minnum svo á að staðan er æsispennandi í öllum riðlum að loknum 3 umferðum af 9.
16.02.2008 23:26
Aðstoðarmaður umsjónarmanns hjá Selfoss-Getraunum
Ert þú að leita að skemmtilegri og auðveldri innivinnu þar sem þú þarft bara að mæta einu sinni í viku?

Þá er þetta vinnan fyrir þig.
Umsjónarmann Selfoss-Getrauna vantar aðstoðarmann sem getur hlaupið í skarðið við og við á laugardögum. Eins og tipparar hafa tekið eftir eru ekki gerða miklar hæfniskröfur til umsjónarmanns nema helst að þekkja tölvu frá brauðrist.

Áhugasamir hafi samband við Gissur í síma 894-5070. Aðstoðarmaður þarf að mæta í starfsþjálfun með umsjónarmanni laugardaginn 23. febrúar og sinna störfum hans laugardaginn 1. mars vegna fyrirhugaðrar utanlandsferðar umsjónarmanns.

Launakjör eru skv. kjarasamningi sjálfboðaliða.
16.02.2008 23:12
Úrslit í 7. leikviku - staðan eftir 2 umferðir
Úrslitin í dag voru eftir bókinni og ekkert sem kom á óvart nema kannski hvað Barnsley skoruðu sigurmarkið seint. 11 réttir borguðu seðilinn hjá mörgum og jafnvel pulsu og kókómjólk.

Sérlega gaman er að sjá nýja hópa í toppsætum í mörgum riðlum jafnframt því sem gamlir kunningjar hafa tekið sig á frá Haustleiknum... nefni engin nöfn en fyrsti stafurinn er Bli... :)
16.02.2008 00:23
Lokahófið
Umsjónarmaður Selfoss-Getrauna vill koma sérstöku þakklæti til þeirra sem mættu á lokahófið í kvöld og sköpuðu með okkur ánægjulega kvöldstund.

Kærar þakkir. :)
16.02.2008 00:22
Búið er að draga í riðla í Vorleik Selfoss-Getrauna
Dregið var í riðla Vorleiksins á lokahóf Haustleiksins nú í kvöld. Búið er að uppfæra stöðu í riðlunum að lokinni 1. umferð (6. leikviku).
15.02.2008 15:05
Lokahóf Haustleiks Selfoss-Getrauna
Lokahófið verður milli 20 og 22 í Tíbrá í kvöld.

Rétt er að benda spennufíklum á að dregið verður í riðla við hátíðlegt tækifæri meðan fólk gúffar í sig steikinni.
10.02.2008 10:52
Vorleikur Selfoss-Getrauna 2008
Nýr hópleikur er hafinn hjá Selfoss-Getraunum og verður raðað í nýja riðla fyrir næstu helgi. Staðan verður jafnframt uppfærð fyrir þann tíma.
09.02.2008 11:19
Lokahóf haustleiks
Lokahóf haustleiks Selfoss-Getrauna verður haldið föstudaginn 15. febrúar í Tíbrá. Hófið stendur yfir milli kl 20:00 og 22:00. Gestum er boðið í glæsilega máltíð auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir haustleikinn og skemmtiatriði verða flutt. Öllum þátttakendum á www.tippleikur.is er boðið ásamt mökum.

Vonumst til að sjá ykkur öll.
03.02.2008 22:19
Nýr hópleikur í 6. leikviku
Nú er lag að skrá sig til leiks í skemmtilega leikinn okkar. Minnum fjölskyldu, vinnufélaga, vini og velunnara á að nýr hópleikur hefst um næstu helgi.

www.tippleikur.is/selfoss
03.02.2008 22:16
Hlutabréfapotturinn
Það var nú flest sem gekk upp í pottinum um helgina... nema leikirnir sem var treyst á að væru öruggir!!! Fjórir af fimm "öruggu" leikjunum klikkuðu. Allt annað gekk upp eins og áætlað var. Því varð niðurstaðan 9 réttir og enginn vinningur. Gengur bara betur næst. :)
02.02.2008 22:10
Úrslit í Meistaradeildinni
Ekki var spennan síðri í Meistaradeildinni. Þar mættust Botna og Merida og þegar flautað var til leiksloka höfðu báðir hópar náð 5 réttum. Því þurfti að skoða hvor hópur hefði fleiri útisigra (2) rétta á seðlinum og reyndist Merida hafa 1 útisigur á sínum betri seðli á meðan Botna náði engum útisigri á sínum betri seðli. (Gaman að geta þess að útisigurinn var leikur 12 Sheff. Wed. - Ipswich þar sem Ipswich vann sinn fyrsta útisigur á tímabilinu). Merida er því Hópleikjameistari Selfoss-Getrauna haustið 2007.

Til hamingju Merida. :)
02.02.2008 22:04
Úrslit í Hamrinum
Nú liggur ljóst fyrir að Tígull sr. er sigurvegari í Hamrinum. Eftir æsispennandi úrslitaviðureign voru Tígull sr. og Framsókn með 6 leiki rétta. Tígull sr. reyndist hafa einn útisigur (2) réttan á seðlinum á sama tíma og Framsókn hafði engan útisigur. Því má segja að markatala hafi ráðið úrslitum.

Til hamingju Tígull sr. :)
02.02.2008 14:03
Úrslitaleikur í Meistaradeildinni í beinni
Botna
Björn Björnsson 12 1 1x 1 x2 1 x2 1 1 1x 2 1 12
Anton Hartmannsson 12 1 12 1 2 12 x2 12 1 x2 2 2 1

Merida
Tómas Þóroddsson 2 1 x 1 2 1x x2 1x 1 1x 2 x2 x2
Ómar Valdimarsson 2 1 1x 1 x2 1 2 1x 1 x2 2 1x 1x
02.02.2008 14:01
Úrslitaleikur um Hamarinn í beinni
Tígull sr
Agnar Bent Brynjólfsson x2 1x 12 1 2 1 x2 1 1 2 1x 2 x2
Kjartan Þór Ársælsson 2 1 1x x2 2 1 12 1 1 1x 1 x2 12

Framsókn
Bjarni Harðarson 2 1 12 1 2 12 x2 1 1x 12 2 x2 1
Guðni Ágústsson 12 1 1x 1 12 1 1x 1 1 1x 12 1 1
02.02.2008 14:00
Hlutabréfapottur - seðillinn
Enski boltinn
Leikvika 5 2008
Miði keyptur: 02.02.08
kl. 13:26:20

Nr. 1 X 2
1 33% 44% 22%
2 100% 0% 0%
3 33% 44% 22%
4 100% 0% 0%
5 0% 0% 100%
6 33% 44% 22%
7 33% 44% 22%
8 33% 44% 22%
9 100% 0% 0%
10 33% 44% 22%
11 0% 0% 100%
12 33% 44% 22%
13 33% 44% 22%

Fjöldi raða: 2478

Verð: 24.780 kr.

Ég styð: 800
29.01.2008 22:48
Vorleikur Selfoss-Getrauna 2008
Rétt er að benda tippurum á að í 5. leikviku fara einungis fram úrslitaleikir í Meistaradeildinni og Hamrinum. Öllum er þó frjálst að senda inn seðla og styrkja 2. flokk um leið.

Í 6. leikviku fer af stað nýr tippleikur þ.e. vorleikur Selfoss-Getrauna 2008. Riðlakeppnin stendur yfir í 9 vikur þar sem 7 bestu telja. Svo tekur við 4 vikna úrslitakeppni og í framhaldi af því úrslitaleikur sem fram fer laugardaginn 10. maí (lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram sunnudaginn 11. maí).

Nú er bara að virkja vini, vinnufélaga og ættingja til að skrá sig á tippleikur.is/selfoss og fjölga enn frekar þátttakendum í þessum skemmtilega leik okkar.
29.01.2008 22:47
90 milljónir í tvöföldum Risa-hlutabréfapotti
Tvöfaldur Risapottur er á Enska seðlinum á laugardag og fyrsti vinningur verður um 90 milljónir króna. Þetta er hæsta vinningsupphæð sem hefur verið fyrir 13 rétta í háa herrans tíð.

Nú er tilvalið að leggja í pottinn í Tíbrá á laugardag og freista þess að ná þeim stóra í sameiningu.

Í hlutabréfapotti geta tipparar keypt eins mörg hlutabréf og þeir vilja í sameiginlegum potti sem Selfoss-getraunir kaupa.

Athugið að einungis er tekið við beinhörðum peningum og staðgreiðslu er krafist.

Seðillinn birtist svo hér á www.tippleikur.is/selfoss á laugardag.
29.01.2008 22:06
Úrslitaleikur Hamarsins
Rétt er að taka fram að ástæða þess að TK-Frikki tekur ekki þátt í úrslitaleik Hamarsins er sú að verði lið jöfn að stigum er það lið ofar sem oftar hefur tippað rétt á útisigur (2) og ef enn er jafnt er það lið ofar sem hefur oftar tippað rétt á jafntefli (X). Tígull sr. og Framsókn höfðu sem sagt tippað 14 sinnum rétt á útisigur (2) á sama tíma og TK-Frikki náði því einungis 13 sinnum. Því eru Tígull sr. og Framsókn óumdeilanlega ofar en TK-Frikki.
27.01.2008 23:24
Lokastaðan í Meistaradeildinni
Nú er ljóst hverjir mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Það eru hóparnir Botna og Merida en þeir unnu afgerandi sigra í sínum riðli. Úrslitaleikurinn fer fram næsta laugardag og verður í beinni hér á www.tippleikur.is/selfoss

Rétt er að benda á að hópurinn Andrinho færist upp um eitt sæti vegna aukastigs sem þeir fengu fyrir sigur í sínum riðli. Aukastig annarra hópa hefur ekki áhrif á lokastöðuna.

Í keppninni um Hamarinn urðu hóparnir Framsókn og Tígull sr hnífjafnir og því hefur umsjónarmaður Selfoss-Getrauna tekið sér alræðisvald og fyrirvaralaust skellt á hreinum úrslitaleik milli liðanna um hinn lítt svo eftirsótta Hamar. Mun sá leikur verða í beinni á einni af hliðarrásum www.tippleikur.is/selfoss

Einnig er alltaf gaman að segja frá því að 13 réttir skiluðu sér í hús í Tíbrá um helgina. Góð ávöxtun þar.

Nokkrar athyglisverða staðreyndir úr tippleiknum eru hér fyrir neðan.
Lesa meira
27.01.2008 23:03
Hlutabréfin - góðu fréttirnar
Eins og glöggir fjárfestar vita felast mestu tækifærin í falli hlutabréfanna. Af botninum liggur leiðin bara upp. Um helgina verður aftur sprengipottur... enn stærri en um liðna helgi. Því munu Selfoss-Getraunir aftur standa fyrir hlutabréfapotti laugardaginn 2. febrúar.

Í hlutabréfapotti geta tipparar keypt eins mörg hlutabréf og þeir vilja í sameiginlegum potti sem Selfoss-getraunir kaupa.

Athugið að einungis er tekið við beinhörðum peningum og staðgreiðslu er krafist.

Seðillinn birtist svo hér á www.tippleikur.is/selfoss á laugardag.
27.01.2008 22:43
Hlutabréfin - slæmu fréttirnar
Verðfall varð á hlutabréfum í Tíbrá um helgina. Er helst um að kenna góðu gengi liðanna sem voru líkleg til að vinna sína leiki og í einstaka tilfellum því að leikirnir fóru ekki eins og þeir voru líklegir til að fara.

Segi svo bara eins og yfirnagarinn... vona að þetta hafi verið nógu óskýrt fyrir ykkur! :)

Annars eru tölfræðilegar staðreyndir hér fyrir neðan...
Lesa meira
26.01.2008 14:52
Hlutabréfapottur - seðillinn
Enski boltinn
Innsendar raðir
Leikvika 4 2008
Miði keyptur: 26.01.08
kl. 13:39:23

Nr. 1 X 2
1 38% 28% 33%
2 59% 40% 0%
3 40% 26% 32%
4 40% 27% 31%
5 37% 29% 32%
6 36% 29% 33%
7 100% 0% 0%
8 35% 30% 34%
9 100% 0% 0%
10 100% 0% 0%
11 0% 47% 52%
12 40% 28% 30%
13 0% 47% 52%

Fjöldi raða: 3136


Verð: 31.360 kr.

Ég styð: 800
19.01.2008 22:37
Hlutabréfapottur í RISAPOTTI
Þar sem ekki var greitt út fyrir 10 rétta í 3. leikviku er ljóst að RISAPOTTUR verður í 4. leikviku. Selfoss-getraunir standa fyrir hlutabréfapotti á morgun. Þar geta tipparar keypt eins mörg hlutabréf og þeir vilja í sameiginlegum potti sem Selfoss-getraunir kaupa.

Athugið að einungis er tekið við beinhörðum peningum og staðgreiðslu er krafist.

Seðillinn birtist svo hér á www.tippleikur.is/selfoss á laugardag.
19.01.2008 22:15
Úrslit í 3. leikviku - Staðan fyrir lokaumferðina
Þá liggja fyrir úrslitin í 3. umferð Meistaradeildarinnar og ljóst að Botna og Merida setja markið fyrir önnur lið í deildinni. Ljóst er að liðin sem á eftir koma verða að tefla djarft í lokaumferðinni til að eiga möguleika að hreyfa við toppliðunum.

Minni jafnframt á að Þór&Danni, Andrinho, Botna og Merida hafa eitt aukastig sem enn á eftir að færa inn í stöðuna.

Ekki má gleyma keppninni um Hamarinn en þar er spennan í algleymi og þrjú lið efst og jöfn fyrir lokaumferðina. Það eru liðin Tígull sr, TK-Frikki og Forest FC.
19.01.2008 14:57
Bilun hjá Greiðslumiðlun
Vegna bilunar hjá Greiðslumiðlun þurfti umsjónarmaður að ganga frá kaupum á nokkrum getraunaseðlum í verslun Samkaupa á Selfossi. Af þeim sökum eru nokkrir tipparar í skuld við umsjónarmann og verður haft samband við tippara vegna þess.
Greiðslumiðlun er fyrirtækið sem heldur utanum um greiðslukort fyrir kortafyrirtækin og vegna bilunar þar var því miður ekki hægt að skuldfæra í sölukerfi Selfoss-Getrauna í Tíbrá eftir kl 13:00.
Rétt er þó að taka fram að þetta hafði engin áhrif á tippleikinn.
Beðist er velvirðingar á þessum truflunum.
Gissur Jónsson
Selfoss-Getraunum
19.01.2008 13:13
Rafmagnstruflanir hjá netveitu tippleikur.is
Kæru tipparar

Vegna rafmagnstruflanna hjá hýsingaraðila í morgun lá síðan niðri. Núna eru vararafstöðar að keyra tölvukerfið og ættu því ekki að verða frekari truflanir í dag.

Beðist er innilegara afsökunar á þeim truflunum sem þessi bilun hefur valdið.

Með bestu kveðju að vestan
Torfi Jóhannsson
Tippleikur.is
12.01.2008 21:59
Úrslit í 2. leikviku - Meistaradeildin hálfnuð
Að lokinni 2. umferð í Meistaradeildinni hafa nokkrir hópar náð betri árangri en aðrir. Svo það er ljóst að þeir hópar sem hafa náð lakara árangri en aðrir geta bætt sig á næstu tveimur vikum. Minni á að Þór&Danni, Andrinho, Botna og Merida hafa eitt aukastig sem enn á eftir að færa inn í stöðuna.

Keppni um Hamarinn (Framrúðubikarinn) er ekki síður spennandi og ljóst að barist verður fram á seinustu mínútu.

Nokkrir hópar skiluðu krónum í hús í dag og ljóst að létt hefur á VISA-reikningum á sumum heimilum.
07.01.2008 23:09
Búið að uppfæra stöðu í Hamrinum (Framrúðubikarnum)
Búið er að færa inn lágmarksskor á þá hópa sem ekki skiluðu inn spá um seinustu helgi. Beðist er velvirðingar á töfum sem urðu við uppfærslu.
30.12.2007 22:51
Drátturinn í Meistaradeildinni
Dregið hefur verið í riðla í Meistaradeildinni. Drátturinn var í beinni útsendingu í Ferðasjónvarpinu eins og glöggir tipparar tóku eftir.

Eftirfarandi lið drógust saman:
Lesa meira
30.12.2007 16:50
Keppni í Meistaradeildinni og Hamrinum hefst í 1. leikviku 2008
Nú er ljóst hvaða hópar unnu sér þátttöku í Meistaradeildinni og hvaða lið þurfa að láta sér lynda að keppa um Hamarinn. Ef villur leynast í lokastöðunni bið ég ykkur að láta mig vita í síma 894-5070 eða í Tíbrá næsta laugardag.

Dregið verður í riðla fyrir áramót.

Nánar um Meistaradeildina og Hamarinn.
Lesa meira
30.12.2007 14:17
A - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Þór&Danni 84 stig (henti 5)
2. Tígull jr 83 stig (7)
3. Heitu sporarnir 83 (6)
4. Randver 82 (7)
5. Bond 81 (6)

Þór&Danni tekur 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegari riðilsins.

Í Hamarinn fara:
6. TK-Frikki 77 (6)
7. Bílasala Selfoss 77 (5)
8. Tundra 75 (6)
9. Ískalt 73 (5)
30.12.2007 14:12
B - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Andrinho 84 stig (henti 7)
2. Snillar 79 stig (7)
3. Blikk 79 (6)
4. Málarar 79 (7)

Andrinho tekur 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegari riðilsins.

Í Hamarinn fara:
5. Selhús 78 (6)
6. Toto 77 (6)
7. Eyjar 77 (6)
8. Samtökin78 70 (6)
9. Bojan 70 (6)
30.12.2007 14:05
C - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Botna 82 stig (henti 4)
2. Þruman 80 stig (7)

Botna tekur 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegari riðilsins.

Í Hamarinn fara:
3. FC Vaðnes 78 (6)
4. Hallgerður Langbrók 78 (7)
5. Forest 78 (5)
6. Tígull sr 77 (6)
7. Framsókn 74 (6)
8. Zorro 74 (5)
9. Berghólar 67 (6)
30.12.2007 14:01
D - riðill LOKASTAÐA
Í Meistaradeildina fara:
1. Merida 81 stig (henti 6)
2. Naut 79 stig (7)
3. Stelpurnar 79 stig (7)

Merida tekur 1 stig með sér í Meistaradeildina sem sigurvegari riðilsins.

Í Hamarinn fara:
4. Zeppelin 78 (6)
5. Eðalhús 78 (6)
6. Selós 77 (5)
7. Tipparar vikunnar 76 (6)
8. Kahn og Lehmann 74 (6)
30.12.2007 13:56
Úrslit í 52. leikviku - lokastaðan í riðlakeppninni
Úrslitin í gær vöfðust fyrir flestum tippurum en þó voru tveir hópar sem náðu 11 réttum og skutu sér inn í Meistaradeildina auk þess að ávaxta peninginn vel.

Verið er að telja 9 bestu vikurnar og munu niðurstöðurnar koma inn á síðuna von bráðar.
30.12.2007 13:51
LOKASTAÐAN Í JÓLASTRESSINU
Þá liggur fyrir hverjir eru sigurvegarar í jólastressinu 2007.

1. sæti - 43 stig Botna (Toni og Bassi)
2. sæti - 41 stig Bond (Árný og Erla)
3. sæti - 39 stig Sporarnir (Bárður og Kiddi)

Glæsilegir gull, silfur og brons flugeldapakkar eru veittir þremur efstu sætunum. Verðlaunahafarnir geta vitjað vinninga sinna í flugeldasölu knattspyrnudeildarinnar í Selinu. Þökkum öðlingunum í flugeldunum kærlega fyrir vinningana. :)

Í næstu sætum með 38 stig urðu hóparnir Hikandi, Sir og Tígull. Aðrir hlutu minna.
Lesa meira
22.12.2007 01:51
Jólastress
Hinn árlega desemberleikur Selfoss-Getrauna stendur nú sem hæst. 4 bestu vikur desembermánaðar telja og er ekkert hámark á fjölda raða sem hver hópur má skila inn. Verðlaun eru sérlega glæsilegar úttektir í flugeldasölu knattspyrnudeildar.

Staða efstu liða að loknum 3 umferðum er svona:
Lesa meira
13.12.2007 22:47
Afmæliskaffi knattspyrnudeildar
Minjaverndarsjóður knattspyrnudeildar býður til afmæliskaffis í Tíbrá laugardaginn 15. desember kl. 11, en þann dag á knattspyrnudeild UMF. Selfoss 52ja ára afmæli.
Lesa meira
02.12.2007 22:00
Dögurður næsta laugardag - búið að uppfæra stöðuna eftir 6 umferðir
Búið er að uppfæra stöðuna í tippleiknum og urðu miklar sviptingar í öllum riðlum.

Laugardaginn 8. desember bjóða Selfoss-getraunir upp á dögurð (brunch) í Tíbrá.
Lesa meira
30.10.2007 22:08
Hópleikurinn farinn af stað
Nú er fyrstu umferðinni í hópleiknum okkar lokið og ljóst að baráttan verður hörð. Vegna tæknilegra orsaka er staðan þó ekki rétt en það verður leiðrétt við fyrsta tækifæri.
25.10.2007 14:42
Muna að skrá hóp
Minni á að skrá hópa til leiks hérna á www.tippleikur.is

Opið á laugardag milli 11 og 13 í Tíbrá.
22.10.2007 22:24
Prufukeyrslu lokið og alvaran hefst um næstu helgi
Þá er lokið undirbúningi okkar fyrir hópleikinn og ljóst að Hallgerður skaut öðrum tippurum ref fyrir rass.
Lesa meira
22.10.2007 22:10
Reglur hópleiks Selfoss getrauna
Á meðan reglur hópleiksins eru ekki réttar undir hlekknum „leikreglur" verða þær hérna á fréttasíðunni.
Lesa meira
18.10.2007 21:08
Fyrsta prufa gekk vel
Nú er ljóst að kerfið er að virka hjá okkur. Svo við höldum ótrauð í næstu viku prufukeyrslunnar.
Lesa meira
12.10.2007 23:31
Nýr hóplekur að fara af stað.
Stefnt er að því að nýr hópleikur Selfossgetrauna fari í gang laugardaginn 27. október. Nýtt kerfi verður notað til að halda utan um leikinn.
Lesa meira
12.10.2007 23:30
Opnunartími Selfossgetrauna.
Opið er í Tíbrá alla laugardaga milli klukkan 11 og 13.