Aðalsíða
Staða hópleiks
Seðill vikunnar
1x2 tölfræði vikunar
Síðustu 6 leikir í ensku
Leikreglur

Notandi:
Lykilorð:
Nýskráning
Gleymt lykilorð
13.03.2009 18:12
Tippleikur og æfingaleikur.
Við ætlum að flýta tippleiknum og hafa hann milli 9:00 og 10:00 í fyrramálið og fara svo og horfa á æfingaleikinn við HK í Kórnum þeir sem ekki geta komið kl 9:00 eða tippað á netinu geta hringt í Kára s:6604060 eða Guðna í s:8965446 og lesið inn röðina.
Æfingaleikur við HK á laugardaginn
Næstkomandi laugardag mun meistaraflokkur karla spila æfingaleik við HK.Leikurinn fer fram í Kórnum og hefst kl 10:20.
Vona að þetta komi ekki illa við neinn.
Kv Kári A
19.02.2009 21:39
Kaffi og kökur.
Nú tippum við á laugardaginn, kaffi og kökur, svo er leikur klukkan 13:00 í beinu framhaldi sjá nánar:
Strákarnir eru að fara spila sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum þetta árið. Andstæðingarnir eru Afturelding en þeir spila í 1 deild á komandi leiktíð eftir að hafa lent í 2 sæti í 2.deildinni í sumar.
15.02.2009 22:57
Vinningar
Tveir voru með 10 rétta sem gáfu 320 kr í hönd
24.01.2009 14:24
Vandræði
Nú kom upp vandamál þar sem þráðlausanetið í Egilshöll var ekki virkt í morgun og svo kom upp vandræði á 1x2 þess vegna komust engar getraunaraðir í gegnum kerfið.
Ég biðst afsökunar á þessu.
Vona að enginn verði af stórum vinning.

Kári A
16.01.2009 21:21
Kaffi og kökur.
Laugardagur 17. jan kaffi og kökur eins og venjulega í Sportbitanum gamla
Miðar á Herrakvöldið á staðnum

23.12.2008 17:21
GLEÐILEG JÓL
Getraunaleikur Fjölnis óskar öllum gleðilegra jóla.
23.12.2008 17:20
Úrslit haust 2008
Sigurvegarar tippleiksins í haustmótinu 2008 eru
1.sæti Gulir FC
2.sæti Torres
3.sæti Kærleiksbirnirnir.
Verðlaun verða afhent eins og áður sagði í Flugeldasölu Fjölnis í samráði við Kára.

Nýr leikur hefst 10.janúar 2009.
20.12.2008 09:34
Síðasti tipplaugardagurinn 2008
20.des er síðasti tippdagur á árinu 2008.
Nýr hópleikur hefst 10.janúar 2009
Vinningar verða afhentir í Flugeldasölu Fjölnis í Dalhúsum 2. Tilkynning vinningshafa verður sett inn á síðuna á mánudag 22.des

06.12.2008 18:25
Fjölnir-FH
Spilað við FH á sunnudaginn
Meistaraflokkur karla spilar á sunnudaginn sinn annan æfingaleik á tímabilinu. Spilað verður við FH og fer leikurinn fram í Kórnum í Kópavogi og hefst hann kl 16:30.

FH-ingar hafa einnig spilað einn æfingaleik á tímabilinu en þeir unnu Víking R 2-1. Hvetjum alla til að mæta og sjá strákana spila á móti sterku FH liði

Sunnudagurinn 7 des. Fjölnir-FH Kórinn kl 16:30

28.11.2008 17:43
Leikur mfl karla.
Mfl karla spilar á mánudaginn við Reyni S
Næstkomandi mánudag spilar mfl karla sinn fyrsta leik á nýju undirbúningstímabili, spilað verður við lærisveina Kristófers Sigurgeirssonar úr Sandgerði. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst stundvíslega kl 18:30.

Hvetjum alla til að mæta og sjá hvernig strákarnir okkar koma undan vetri.

ÁFRAM FJÖLNIR

28.11.2008 17:41
LAUGARDAGSKAFFI
Kaffi og kökur að hætti Guðna á morgun eins og venja er.
31.10.2008 17:38
Loksins Loksins
Loksins er STAÐA HÓPLEIKS´
komin í lag.
Nú er að mæta í fyrramálið og tippa.
Kv Kári A

25.10.2008 09:43
Getraunaleikur Fjölnis
Nú er getraunaleikur Fjölnis loksins hafinn að nýju.
Kaffi og með því er á boðstólum fyrir þá sem vilja koma og tippa með okkur.
Getraunaleikur er til húsa í Gamla Sportbitanum Egilshöll.