Aðalsíða
Staða hópleiks
Seðill vikunnar
1x2 tölfræði vikunar
Síðustu 6 leikir í ensku
Leikreglur

Notandi:
Lykilorð:
Nýskráning
Gleymt lykilorð
31.01.2012 15:52
Nýr hópleikur
Nýr hópleikur hjá Fylkisgetraunum hefst um helgina..
Lesa meira
31.01.2012 15:51
10 réttir hjjá húskerfinu í viku 4
Aðeins 10 réttir voru hjá húskerfinu í viku fjögur en gaf 8,650 eða um þriðjung tilbaka.

Nú fer að færast fjör í leikinn þar sem Risapottar eru viku eftir viku.
Lesa meira
08.02.2011 14:20
Stefnir í hörku hópleik
Ágætu tipparar
Það stefmir í hörku hópleik. Miklar sviptingar og dramatík,
Persie Pool náði 12 réttum um helgina og kom sér fyrir á meðal efstu hópa.
Anfield Ásum varð á í messunni. Sendingin til okkar klikkaði og hvað gerist þegar eitthvað klikkar? Menn fá auðvitað 13 rétta en verða af vinningnum.
Þar fór stóri vinningurinn sem við lofuðum.
Næsta helgi verður spennandi.
Slagurinn um Manchester kl. 1230 á laugardag og Liverpool að vinna 5 leikinn í röð.

Nefndin

13.12.2010 15:43
Bræðrabylta vann hópleikinn!
Úrslitin í hópleik vetrarins eru ráðin. Bræðrabylta hélt út og náði í 10 rétta um helgina og skaut sér frammúr fjórum hópum, Anfield Ásum sem náði aðeins 8 réttum, Vörðunni 9, Horn í Síðu 5!, og Kommanum sem náði aðeins 8.

Lesa meira
29.11.2010 13:08
Sparrow Mebabikarmeistari 2010
Kæru tipparar

Helgin var ekki gjöful á stóra vinninga. Hinsvegar jókst spennan á toppnum. Persie Pool læðist aftan að efstu hópum sem og nokkrir aðrir hópar. United stóð fyrir sínu á seðlinum en aðrir voru ruglinu.



Lesa meira
21.11.2010 01:55
Úrslit í MEBA og SKALLA bikar
Aðeins Júðinn og górillan detta út þar sem enginn seðill skilaði sér inn frá þeim.
Annars eru MEBA úrslitin hér;
Sparrow - Varðan 7-7
BIF - Júðinn og Górillan 7-5

Lesa meira
19.11.2010 14:44
Skallabikarinn 2010
Dregið hefur verið í Skallabikarnum 2010. Eftirfarandi hópar drógust sama:


Lesa meira
19.11.2010 00:00
Niðurstaða helgarinnar.
Snjórinn fer vel í norður hópana, Horní síðu og Bræðrabyltu. Enn á toppnum. Varðan skaust í þriðja sætið með 11 rétta, tveimur meira en Dúddar og Anfield Ásar.

Flestir aðrir í rugli.



Úrslit í Meba bikar:

Dúddu, Horní síðu og Anfield Ásar duttu óvænt úr leik sem en þessir hópar eru miklir bikarhópar. Hinsvegar duttu Persie Pool, Himbrimi og Rauðavað örugglega út fyrir JogG og BIF..


Sparrow 10 - Dúddar9
Anfield Ásar 9-Varðan 11/Horn í síðu 10
Himbrimi 8- Júðinn og Górillan 9
Persie Pool 9/Rauðavað 9-BIF 10
Lesa meira
13.11.2010 00:43

Kæru tipparar

Um síðustu helgi var frekar erfiður seðill. Þó náði Húskerfið skásta árangri eða 11 réttum sem skilar 14.300 í hús eða um 304 kr á þúsundkallinn.


Lesa meira
06.11.2010 14:02
Dráttur í Meba bikar.
Dregið hefur verðið í MEBA bikarnum.

Nokkrar spennandi viðureignir eru framundan í dag:
Lesa meira
05.11.2010 10:45
Meba bikarinn af stað um helgina.
Loksins öruggir leikir á seðlinum um helgina. Óskur aðdáendum Liverpool til hamingju með sigrurinn í gær. Kraftur í Roy á hliðarlínunni. Vantaði bara Trigger.






Lesa meira
01.11.2010 13:41
12 réttir norður
Horn í Síðu er sjóðheitt þessa dagana en norðlendingarnir settu í 12 rétta um helgina.
Lesa meira
28.10.2010 00:26
10 hópar skráðir
Aðeins 10 hópar eru mættir til leiks en enn er hægt að skrá sig til leiks. Allt eru þetta góðkunningjar Fylkisgetrauna sem eru mættir til leiks. Norðlendingarnir Bræðrabylta og Horn í síðu kræktu í ellefu rétta en tveir staðfastir púlarar komu næstur með 10 rétta.
Lesa meira
18.10.2010 13:51
Nýr Hópleikur
Getraunaleikur hefst 23. Október
Nýr átta vikna hópleikur hefst 23 . okt. Tippleikurinn fer að mestu leyti fram á tippleikur.is/fylkir þar sem skráning fer fram. Reglurnar eru hér en 6 bestu vikurnar gilda. Þátttökugjaldið er kr. 2000 og fer allt í vinninga. 6. nóvember hefst svo hinn vinsæli MEBA bikar
Á laugardögum milli 10:30 til 14:00 eru allir velkomnir í kaffi, meðlæti og spjall.


22.03.2010 23:21
Anfield Ásar toppuðu á réttum tíma!
Óvænt úrslit voru í hópleiknum um helgina en samt ekki svo. Hinn gríðarsterki hópur eins og nafnið gefur til kynna, ANFIELD ÁSAR, gerðu sér lítið fyrir og renndu í TÓLF rétta á meðan Hæjóma var eingöngu með 8 rétta. Með því skutust Ásarnir uppí efsta sætið og vinna hópleikinn með tveimur stigum, unnu upp tveggja stiga forystu Hæjóma! Jafnir í öðru til þriðja voru Hæjóma og Dúddar sem komu aftan að þessu með góðum endaspretti. Heyja þeir bráðabana um næstu helgi um hvor hreppir silfrið. Persie Poo, sem leiddi keppnina lengi vel, hafnaði í 4-6 sæti með Horni í síðu sem nældi í 11 rétta og sjálfum ferguson sem gaf efstir á lokasprettinum.
Lokastaðan:
Lesa meira
14.03.2010 23:20
Spennan magnast.
Ágætu tipparar

Úrslit vikunnar voru eftir bókinni, svona að mestu. Nú um mundir er Liverpool að spila á fimmtudögum og mánudögum, eða á meðan þeir eru í Evrópudeildinni. Það er öllu léttara yfir Púlurum um helgar núorðið. Finnst ykkur það ekki? Þó voru einhver úrslit að trufla alla því besti árangur var 11 en flestir voruð með 8-9.

Lesa meira
12.03.2010 13:34
10-12 tólf hópar berjast um að komast á pall
Þegar 2 vikur eru eftir af hópleiknum eiga 10-12 hópar raunhæfan möguleika á að komast á pall. Hæjáma stendur best að vígi en það eru magnaðir hópar rétt á eftir.

Lesa meira
08.03.2010 14:47
MEBA Bikarmeistari vor 2010 : DÚDDAR
Lítið var um óvænt úrslit um helgina en þrátt fyrir það náðum við ekki að setja í þrettán rétta. Fyrir helgi gaf nefndin tippurum heilræði með festingu á leik sem gekk að sjálfsögðu eftir. Ekki voru sem tóku mark á heilræðinu og eyddu dýrmætum merkjum í tryggja viðkomandi leik sem kostaði þá jafnvel titil. Bangsi fór að ráðum nefndarinnar og fékk 11 rétta sem er frábær árangur.

Lesa meira
22.02.2010 15:38
Spennan eykst
Úrslit helgarinnar frekar fyrirséð og því frekar hátt skor hjá þeim sem hafa smá innsýn í knattspyrnu.


Lesa meira
09.02.2010 17:38
Húskerfið nálgast 13 rétta.
Leikir helgarinnar fóru vel fram. Allir kláruðust og enduðu allir 1 X eða 2.

Einn leikur, eitt mark og einn leikmaður er okkur ofarlega í huga. Sjá neðar.


Lesa meira
18.01.2010 20:27
1 vikan að baki
Ágætu félagar

Hópleikurinn fór ágætlega af stað. Flestir fengu vinning. Þ.e 10 rétta. Menn geta bætt sér í hópinn á næstu 2 skipti. Flest betri lið Englands unnu sína leiki, nema Tottenham, x á móti Hull heima.


Lesa meira
15.01.2010 13:33
Nýr 10 vikna hópleikur hefst um helgina.
Sofandi hópar eru vinsamlega beðnir um að vakna. Elmundo, Rauðavað, Rauðás, Bangsi, Funi, hotpool, Kominn, Cyti, Old Elland, Anfield Asar, Pool Ásinn og Varðan. Allir þessir hópar gætu unnið ef þeir taka þátt.

Lesa meira
08.01.2010 22:40
Gleðilegt nýtt tippár!
Ágætu tipparar

Getraunanefndin óskar ykkur gleðilegs nýs árs og farsæls komandi árs.

VALVAN 2010

Eins og oft áður í upphafi nýs árs hafði nefndin samband við VÖLVU getrauna og fékk hjá henni innsýn inní hvað framundan væri.


Lesa meira
13.12.2009 23:35
Óli Pé á Anfield!
Það er deginum ljósara að Óli Pé verður EKKI sendur aftur út á Old Trafford. Hann er óhappa. Hins vegar er í góðu lagi ef hann fær sér season passa á Anfield. Annars er það ágæt tilhugsun og búbót að mæta Liverpool í Evrópukeppni næsta sumar en þá þurfa þeir að halda 7. sætinu.
Lesa meira
06.12.2009 17:03
Persie lafir einn á toppnum
Mikil spennna er að færast í hópleikinn. Persie Pool fékk 9 um helgina sem dugar honum til eins stigs forystu. 12 hópar eru 4 stigum og minna á eftir honum. Ljóst að hann hrapar niður töfluna ef hann mistígur sig hið minnsta.
Lesa meira
06.12.2009 00:51
Goalkeeper Utd MEBA bikarmeistari haust 2009
Tvö typpi/Gool.Keeper/Persie pool v Óley Group tippuðu til úrslita í Mebabikarnum að þessu sinni.
Lesa meira
05.12.2009 12:50
Dráttur í Skallabikar

Lesa meira
03.12.2009 00:27
Ágætu tipparar.
Mikil hamingja ríkti með framtak nefndarinnar að vera með pitsur og franskar um sl. helgi. Úrslitin voru að vefjast fyrir mönnum eins og oft áður en þau virtust vefjast mest fyrir Grimsby og Left foot sem hlutu einungis 7 rétta af 13 mögulegum.

Lesa meira
28.11.2009 11:59
Dráttur í bikar
Þeir sem að mætast í 4 liða úrslitum eru:

Tvö typpi - Gool.Keeper/Persie pool
Óley Group - Mjöll
23.11.2009 14:52
Dúddarnir með 11 rétta
Gamli tipparinn var með 10 rétta um helgina. Klikkaði m.a. á Arsenal eins og hálf þjóðin. Annars voru Dúddarnir með 11 rétta en því miður telur það ekki hjá þeim þar sem seðillinn var ekki sendur inn.



Lesa meira
21.11.2009 11:53
Dráttur í bikarinn!!! 8 liða úrslit...
Eftirtalinn lið mætast.

Gool Keeper - Óley group
Persiepool - Horn í síðu
Grimsby Town - Tvö typpi
Mjöll - Left foot
19.11.2009 17:33
Vika 47
Getraunfréttir Fylkis-vika 47
Ágætu tipparar

Þættinum hefur borist pistill eða sérfræðiálit frá tippara sem kallar sig "Gamli Tipparinn"
Lesa meira
16.11.2009 22:28
Úrslit í 16 liða Meba bikar
Tippið er alveg að komast í fyrri gír. Það á betur við suma en aðra.

Það er alveg ljóst að sumir eru heppnari en aðrir.
Lesa meira
14.11.2009 12:57
Dráttur í bikarinn!!!
Drátturinn:

Mjöll - Sparrow
Oley group/Dúddar - Ferguson
Varðan - Left foot
BIF - Tvö Typpi
Hægri grænir - Horn í síðu
Bræðra byltu - Gool keeper
Aronar - Persie pool
Gimsby town - Leeds united

13.11.2009 15:49
MEBA bikarinn 2009
Mebabikarinn hefst á morgun. Tippið snemma, forðist biðraðir.

Á morgun er landsleikjahelgi en einum leik hefur þegar verið frestað, leik Þýskalands og Chile, vegna fráfalls markvarðarins.



Meba bikarinn:

1. umferð fer fram um næstu helgi. Menn geta notað gamla hópinn eða stofnað nýjan á www.tippleikur.is/fylkir

Ekkert þátttökugjald. Engin krafa um að senda seðil inn til getrauna. Eins ókeypis og hægt er. Dregið klukkutíma fyrir leik.


16.10.2009 14:45
Dagskrá vetrarins
er eftirfarandi* :

Lesa meira
16.10.2009 14:45
Keppnistímabilið 2009-2010 að hefjast.
Um helgina hefst 1. getraunaleikur vetrarins.

Fyrsti leikurinn er 10 vikna hópleikur þar sem átta bestu vikurnar gilda.
Verðlaun eru veitt fyrir 3 efstu sætin.

Lesa meira
19.01.2009 16:53
Lukkudráttur í húskerfinu..
Nú er búið að draga út þrjá aðila sem tóku þátt í húskerfinu, og hafa eftirtaldir unnið miða á Herrakvöld Fylkis: Gunni Högna, Viðar Helga og Ingvar Guðfinnsson. Geta þessir aðilar sótt miða sína í afgreiðslu Fylkishallar.
01.12.2008 16:00
Gaddakrabbasúpa....
Á laugardaginn kemur ætlar getraunanefndin að bjóða gestum og gangandi uppá Gaddakrabbasúpu en hún samanstendur af krabbaklóm, lúðu, skötusel , skarkola, grænmeti, rjóma og ýmsu kryddi m.a. saffran. Með súpunni verður svo boðið uppá brauð beint úr ofnum bakarans.

Súpan verður klár kl. 11:30 á laugardagsmorgunn og eins og venjulega gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá.
17.10.2008 09:10
Byrja núna
Á laugaradag hefst tippleikurinn hjá okkur og um að gera að vera með frá upphafi það eykur líkurnar til muna..
08.10.2008 13:35
Flott að tippa núna!!!
Glúrinn tippari var með 13 rétta á laugardaginn á Enska seðlinum. Hann fékk 6,5
Lesa meira
08.10.2008 09:06
Tippleikur að hefjast
Nú á næsta laugardag verður tekin létt æfing á tippleikinn og hefst svo 10 vikna keppni þann 18 oktober og lýkur þann 20 Desember.
29.03.2008 11:25
Fjögurra leikja hópleikur !!
Næstu helgi eða þann 5 Apríl hefst seinni spretturinn hjá okkur og verður það fjögurra vikna keppni og gilda allar fjórar vikurnar að fullu svo það verða þeir sem að sýna mesta stöðugleika.
17.03.2008 15:31

Ágætu tipparar

United er komið á toppinn og verður þar til loka leiktíðar. Mótmælir því einhver? Liverpool er enn í fjórða sæti og má bara eiga það sæti. Um aldur og ævi.
Lesa meira
11.03.2008 00:38
Spennan magnast- vika 10
Síðasta helgi hófst á Fræðslukvöldi á föstudagskvöld þar sem Fylkismenn fengu stutta kynningu á BUR starfi klúbbsins. Þá fengu menn að njóta stuttrar yfirferðar um meistaraflokkinn flutta af Þjálfaranum.

Einnig var sýnd stuttmynd frá dagsferð til Póllands og vakti hún upp gamlar góðar minningar. Leikur Pogons og Fylkis fékk síðan að rúlla út kvöldið. Almenn ánægja var með þessa uppákomu og eiga menn von á enn meira fjölmenni á næsta Fræðslukvöldi sem stefnt er á að halda í apríl.

Lesa meira
28.02.2008 14:41
IFC 3 einn á toppnum
Úrslit helgarinnar voru með fyrirséðari hætti og því var skorið nokkuð hátt. Fimm voru með 11 rétta og fjórtán voru með 10 rétta. Þá var einnig fyrirséð að þjálfarinn myndi eiga Stórafmæli og að húskerfið myndi klikka á einhverjum einföldum leikjum. Allt gekk eftir.


Lesa meira
18.02.2008 14:59
6. umferð. 4 með 11 rétta.
Þar sem getraunanefnd er saman sett úr 4 poolurum, 2 leedsurum og aðeins einum MU manni, verður ritstjóri að gæta orðalags í þessum pistli.
Lesa meira
28.01.2008 11:46
Húskerfið með 13 Rétta !!!!!
Þetta var góð vika hjá okkur í tippinu, enda Herrakvöldshelgi og fengu fjórir hópar tólf rétta.
Staðan í hópleiknum er þá þannig að Leeds united er á toppnum með 33 stig en Varðan og Old Elland fylgja fast á eftir með 32 stig. Nú er bara að mæta næst og taka þátt í hinu sívinsæla húskerfi sem er komið á beinu brautina og var með 13 rétta, eftir erfiða byrjun.
22.01.2008 00:22
4 með 11 rétta
Fjórir ágætir tipparar náðu ellefu réttum um helgina. Úrslitin voru flest eftir bókinni en tipparar voru eflaust að reikna með óvæntum úrslitum stóru liðanna og eyddu einhverjum tvítryggingum í þau og þ.a.l. varð árangurinn ekki betri. En 11 réttir þykir bara nokkuð gott.
Lesa meira
19.01.2008 12:52
Rafmagnstruflanir hjá netveitu tippleikur.is
Kæru tipparar

Vegna rafmagnstruflanna hjá hýsingaraðila í morgun lá síðan niðri. Núna eru vararafstöðar að keyra tölvukerfið og ættu því ekki að verða frekari truflanir í dag.

Beðist er innilegara afsökunar á þeim truflunum sem þessi bilun hefur valdið.

Með bestu kveðju að vestan
Torfi Jóhannsson
Tippleikur.is
15.01.2008 01:55
Hópleikurinn farinn af stað.
Hópleikurinn hófst um helgina og náðu flestir tipparar góðu starti. Nokkrir nýjir hópar bættust í hópinn. Þar skal fystan nefna Meyjarnar sem geyma tvo gamalreynda með hangikjöt. Síðan er eini Man City aðdáendinn í Árbæ og Tiger Group sem líta út eins og Göj og Gokke. Þá er það Álverið en þar fara ungir menn sem styðja stóriðjustefnu Framsóknarflokksins og vilja álver norður sem fyrst.


Lesa meira
10.01.2008 14:49
Verðlaunaafhending á laugardag
N.k. laugardag kl 12:13 fer fram verðlaunaafhending fyrir Haustleikinn, Mebabikarinn og Skallabikarinn.
Lesa meira
10.01.2008 14:38
Nýr hópleikur að hefjast!
10 vikna Hópleikur Fylkisgetrauna fer í gang laugardaginn 12. janúar.

Leikurinn er öllum opinn og hvetur getraunanefnd alla sem áhuga hafa á fótbolta að taka þátt.
Getraunir gera leikinn skemmtilegri.
Hópgjald er kr. 3000.-.

Lesa meira
03.01.2008 18:09
Horn í Síðu vann Skallabikarinn
Ágætu tipparar.
Gleðilegt nýtt getraunaár.

Þá eru úrslit ljós í öllum haustleikjum Fylkisgetrauna 2007. Ekki var mikið um háa vinninga né 13 rétta en getraunanefnd hefur fulla trú á tippurum félagsins og trúir því að einhverjir muni næla í 13 rétta fyrir vorið.
Lesa meira
23.12.2007 14:24
Ali Baba TC vann!!!
Björn Þó Gunnarsson og Bjarni Helgason sem skipa Ali Baba hópinn unnu haustleik Fylkisgetrauna í bráðabana við IFC 6.
Lesa meira
17.12.2007 11:20
Úrslit ráðast í bráðabana!
Ekki fengust hrein úrslit í 10 vikna hópleiknum og munu því Ali Baba og IFC 6 mætast í bráðabana um næstu helgi.
Lesa meira
10.12.2007 13:07
Allt um viku 49 og ágreiningur.
Ágætu tipparar.

Stóru liðin ManU og Chelsea sýndu mátt sinn og megin um helgina á meðan Liverpool og Arsenal töpuðu sínum leikjum. Þessi úrslit komu mörgum tipparanum í opna skjöldu enda margir tipparar sem hafa trú á þessum liðum. Þessi fjögur lið mætast um næstu helgi, taplið mætir sigurliði og verða báðir leikirnir á getraunaseðlinum um næstu helgi.

Lesa meira
03.12.2007 14:57
Meba og Skallabikarinn
Nýtt nafn verður skráð á MEBA bikarinn. Þeir fimm hópar sem eftir eru hafa aldrei unnið bikarinn.
Lesa meira
03.12.2007 14:53
Vika 48 uppgjör Hópleiks
Laugardagurinn hófst á æfingaleik í Kórnum við HK. Leikurinn tapaðist 1-2 og skoraði Halldór Hilmis mark okkar eftir frábært spil og stoðsendingu frá Hauki Inga. Hollenskur framherji var til skoðunar í leiknum og stóð hann sig ágætlega framan af á gervigrasinu, fékk nokkur færi en tókst ekki að nýta þau. En dagurinn hélt áfram, góð mæting var í Getraunakaffið en leikir dagsins fóru allir út og suður og skorið hjá tippurum var ekki hátt.

Lesa meira
29.11.2007 14:19
Vika 48.
Seðill helgarinnar er gríðarlega snúinn. Því má búast við að tipparar annaðhvort hoppi eða floppi á listanum.
Lesa meira
29.11.2007 14:16
Vika 47 - Húskerfið – 12 réttir.
Getraunanefnd biðst afsökunar á hversu seint fréttirnar eru á ferðinni þessa vikuna. Álagið á ritstjórn Getraunafrétta hefur verið mikið að undanförnu.
Lesa meira
28.11.2007 16:05
Úrslit í Mebabikar
Ekki var mikið um óvænt úrslit í Meba bikarnum nema hvað Hægri grænir detta út á 9 réttum og Komminn silast áfram á 8 réttum. Pool ásinn vann tvo sterka hópa og Lundur vann léttann sigur á Aleda og Canton. Jafnt var hjá BIF og Leeds og Varðan og Old elland fóru einnig áfram saman.




Lesa meira
19.11.2007 14:58
Vika 46 IFC 5 á toppinn
Ágætu tipparar
Enn og aftur eru óvænt úrslit í leikjum sem koma mönnum á óvart. Hvenær ætla menn að fara að fatta þetta.
Makedónar gerðu mönnum skráveifu með sigri sínum á Króötum sem og Tyrkir með sigri sínum á frændum okkar norðmönnum. Þá unnu Ísraelar og Litháar leiki sína og kom það mönnum í opna skjöldu.
Staðan eftir sex umferðir í hópleiknum er tvísýn.

Lesa meira
19.11.2007 14:50
Úrslit í 32 hópa Meba bikar

Lesa meira
16.11.2007 16:55
Drátturinn í MEBA bikar

Lesa meira
16.11.2007 14:27
vika 46 - fréttir
Ágætu tipparar

Helgin framundan er landsleikjahelgi.

Getraunanefndin vill koma því á framfæri við Meistaraflokksráð og þjálfara þess ágæta flokks að vera ekki með æfingaleiki úti í bæ um hávetur á GETRAUNATÍMA.


Lesa meira
14.11.2007 11:18
Draumatippið
Skráning
Tipparar skrá sig á getraunir.is. Þeir sem eru þegar skráðir þar fara í notendaupplýsingar og setja inn nafnið á sínu liði í dálkinn merktum Draumatippið.
Lesa meira
12.11.2007 14:39
IFC 6 á toppinn
Nokkur óvænt úrslit um helgina gerðu mönnum erfitt fyrir en IFC 6 gerði sér lítið fyrir og setti í tólfu en……
Lesa meira
09.11.2007 13:18
45. leikvika
Þrátt fyrir fréttir frá austurströnd Englands um flóðbylgjur munu leikir helgarinnar fara fram. Seðillinn er nokkukð sérkennilegur, aðeins fjögur meðal lið úr efstu deild eða tveir leikir. Restin er úr næst efstu deild.
Lesa meira
03.11.2007 20:59
Fjölmenni á toppnum
Það var ekki hátt skorið þessa vikuna. Menn voru aðalega að klikka á Newcastle, Stoke og Coventry. Einhverjir hefðu hækkað ef Liverpool hefðu unnið sinn leik en það er gömul saga og ný að það þýðir ekki að treysta á það félag.
Lesa meira
29.10.2007 12:43
Hrun á toppnum
Ágætu tipparar

Júúhúú hátíðin mikla eða Uppskeruhátíð eldri flokka fór fram um helgina þar sem hinar ýmsu viðurkenningar voru veittar. Fjalar og Ásta Huld voru kosin bestu leikmenn og efnilegust voru kosin Andrés, Björk og Lovísa. Til hamingju með þetta. Þá varð Raggi sænskur meistari um helgina og við óskum honum og hans fjölskyldu til hamingju með það.

Lesa meira
21.10.2007 23:20
Bræðrabylta með 12 rétta
Önnur vika hópleiksins fór fram um helgina og er greinilegt að ensku liðin eiga mun betur við tippara en landsliðin. Sem betur fer var hádegisleikurinn ekki á seðlinum. Það þurti ekki minna en dómaraskaldal til að knýja fram úrslit í þeim leik auk þess að senda tvo í bað. En svona getur boltinn verið óvæginn.
Lesa meira
15.10.2007 13:48
Fyrsta vika í Hópleik
Jæja þá eru úrslit í fystu viku í tippleik Fylkis lokið.
Sýnist nefndarmönnum að Ferguson sem að allar keppnir ætlaði að vinna sé eitthvað að gefa undan í fyrstu skrefum, eins virðast Tvö Typpi ætla að hefja leik á sama stað og þeir enduðu í hatrammri fallbaráttu. Anfield Ásar hins vegar eru á kunnuglegum slóðum í efstu sætum og þeir sem að vilja í toppslaginn verða að taka þá.
Leeds United haustmeistarar
síðasta árs er hins vegar bara damlandi um miðja deild og ekki líklegir til stórra hluta. En Hægri grænir eru þó þeir sem að efsta sætið verma og eru þeir þekktir fyrir góða vörn og auk þess eru þeir innundir hjá dómaranum.

kveðja

Nefndin

09.10.2007 17:24
Einn var með þrettán rétta
Einn var með þrettán rétta um helgina og er reglan sú að við gefum ekki upp hver fær stóra vinninginn nema með leyfi viðkomandi. En þar sem vinningurinn var ekkert sérlega stór þá gefum við smá hint. “hann skoraði mark í kaplakrika árið 1989, eða fyrir 18 árum”.
Viðkomandi hópur vann því “einnar viku leikinn” og fær að launum frítt í fyrsta hópleikinn .
Nýja kerfið virkar vel og helstu þægindin eru að menn geta tippað hvenær sem er vikunnar og mætt afslappaðir í getraunakaffið hjá Óla.
Húskerfið fór illa af stað, aðeins 11 réttir og enginn vinningur. Við erum hjátrúarfull og segjum að fall sé fararheill.
Við verðum með fréttir á www.tippleikur.is/fylkir eftir þörfum og en sendum póst til áminningar um hópleikinn.

Bestu kveðjur

(7manna nefndin)

Lesa meira
08.10.2007 08:37
Seinni prufa
Ágætlega tókst til við seinni prufuviku í tippleiknum þó að tippstjóra sýnist að menn hafi tekið þetta full alvarlega, Persiepool var með 13 rétta og fær þar af leiðandi fríspil í haust.
Fimm voru með 12 rétta og þrír með 11 og var húskerfið í eim hópi. Útlit er fyrir harða keppni í haust og eins gott fyrir menn að gíra sig upp fyrir átökin. Getraunanefnd biður þá sem að eiga eftir að láta henni í tjé kreditkortanúmerin að gera það hið fyrsta, einnig minnum við að að þeir sem að ekki höfðu sigur í keppnum undanfarinna vikna þurfa að fara að ganga frá hinu einstaklega hóflega hópleikjagjaldi.

Nefndin.
05.10.2007 09:23
Önnur vika í prufukeyrslu.
Nú er málið að slá Ferguson af sínum háa hesti strax og vinna sér inn fríspil í haust.
01.10.2007 09:39
Tilraunakeyrsla á kerfinu.
Jæja þá erum við búnir að prófa kerfið og gekk það bara mjög. Ferguson reyndist hlutskarpastur að þessu sinni og hlýtur í sinn hlut fríspil í tippleiknum fram að áramótum.
Hægt er að sjá stöðuna hér til hægri á síðunni undir staða hópleiks.
27.09.2007 12:57
Getraunir að hefjast

Lesa meira
22.09.2007 09:38
Velkomin á heimasíðu Fylkisgetrauna